Veður

Gul við­vörun gefin út fyrir Breiða­fjörð

Atli Ísleifsson skrifar
Hvassast verður á Snæfellsnesi.
Hvassast verður á Snæfellsnesi. Veðurstofan

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Breiðafjörð vegna sunnan hvassviðris eða storms. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta í kvöld og stendur til fimm í fyrramálið.

Spáð er sunnan fimmtán til 23 metrum á sekúndu með snörpum vindhviðum við fjöll þar sem hvassast verður á Snæfellsnesi. 

Varað er við að varasamar aðstæður gætu skapast fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×