Tvískinnungur borgarstjóra í málefnum Fossvogsskóla Elín Jónsdóttir skrifar 1. júní 2021 21:12 Ég líkt og margir aðrir á höfuðborgarsvæðinu hef fylgst vel með framgangi mála vegna myglu og rakaskemmda í Fossvogsskóla en ég flutti jómfrúrræðu um málið í borgarstjórn á þeim fundi sem nú stendur yfir. Framkoma borgaryfirvalda gagnvart foreldrum barna skólans hefur slegið mig og er ég satt best að segja mjög undrandi yfir framkomunni. Sem foreldri grunnskólabarns upplifi ég mikið vantraust eftir framferði borgaryfirvalda í þessu máli. Upp koma margar spurningar vegna framferðis borgarinnar: Get ég t.d. treyst því að loftgæði séu í góðu lagi í skóla dóttur minnar? Get ég treyst því að þær framkvæmdir sem gerðar eru á skólabyggingum vegna viðhalds eða galla séu með fullnægjandi hætti eða gerðar yfir höfuð? Sjái ég eitthvað athugavert má ég reikna með því að mæta því mótlæti sem foreldrar barna í fossvogsskóla hafa mætt? Ég ímynda mér að við öll séum sammála um að heilsa barnanna okkar og allra barna skuli tryggð og það sé ekki boðlegt að borgaryfirvöld séu ástæða þess að börn hafi misst heilsuna einungis vegna þess að þau mættu í skólann. Er þetta traustvekjandi? Samkvæmt foreldrum barna í Fossvogsskóla hafa samskipti milli foreldra og borgaryfirvalda verið erfið. Þeir hafa upplifað að ekki sé hlustað á þá og meira púður lagt í sannfæra þá um að ástand skólans sé gott eftir framkvæmdir sem hófust í mars 2019. Þeir hafa ítrekað reynt að benda á verstu svæðin í skólanum og þurftu að setja gríðarlegan tíma og orku í það eitt að fá úttektir á skólanum og sama máli gegnir um að fá niðurstöður úttekta. Staðan hefur meira að segja orðið svo slæm að foreldrafélagið réði sér lögfræðing. Hafi þá margir foreldrar upplifað að þeir og börnin þeirra séu vandamálið en ekki húsnæðið eftir samskipti við borgaryfirvöld. Eru þetta virkilega skilaboðin sem við sendum til foreldra? Finnst okkur í lagi að upplifun þeirra sé með þessum hætti? Foreldrar hafa neyðst til þess að opinbera heilsufar barna þeirra í fjölmiðlum í þeirri veiku von um að borgaryfirvöld hlusti en í kjölfarið verið mætt með skeytingarleysi og tómlæti. Eftir þær framkvæmdir sem farið var í liggur fyrir að Heilbrigðiseftirlitið, USK og Verkís hafi verið tilbúin að útskrifa húsnæðið og gefa því fullkomið heilsufarsmat. Þurfti baráttu skólaráðs Fossvogsskóla og foreldra til að fá nánari skoðun og ég trúi því að við séum öll meðvituð um hver niðurstaða þeirra úttekta varð. Það var síðast í dag þar sem fjölmiðlar birtu myndir af loftræstikerfi skólans sem teknar voru við lok framkvæmda 2020 þar sem sjá má myglu og hefur verkfræðistofan EFLA bent á í minnisblaði sínu að framkvæmdirnar hafi ekki reynst fullnægjandi. Nú liggur fyrir að hálfum milljarði var varið í þær framkvæmdir. Hafa borgaryfirvöld gefið út að ekki skuli rífa húsnæðið heldur fara í enn frekari framkvæmdir en mun það duga til þess að börn veikist ekki lengur í Fossvogsskóla? Ekki má gleyma að starfsmenn Fossvogsskóla hafa þurft að takast á við mörg mjög erfið og krefjandi verkefni með börnum og foreldrum í kjölfarið á óheilnæmi húsnæðisins. Starfsmenn skólans hafa rétt eins og nemendur hans veikst vegna myglu og rakaskemmda í húsnæðinu. Það er ólíðandi að borgin bjóði ekki starfsmönnum upp á heilnæmt vinnu umhverfi, það hefur ekki síður verið brotið á þeim og þeir blekktir rétt eins og foreldrar. Nýlega tjáði borgarstjóri sig um málefni Fossvogsskóla og þakkaði starfsmönnum fyrir að halda uppi góðum skólabrag sem er algjör fyrra í samanburði við að starfsmenn skólans gáfu nýverið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að margir þeirra séu að hugsa sig til hreyfings og sjái ekki fram á að geta starfað í þessu umhverfi lengur. Alvarlegast finnst mér þó að eftir alla þá baráttu sem foreldrar hafa þurft að heyja til að fá áheyrn borgaryfirvalda hefur þeim ekki enn borist afsökunarbeiðni. Það er staðreynd að nemendur skólans hafa hlotið skaða af ástandinu og sum þeirra munu lifa við heilsubrest inní fullorðinsárin vegna aðstæðna í skólanum þeirra. Mig langar einnig að fá að tengja stöðu skólans við nýkynnta lýðheilsustefnu Reykjavíkurborgar sem vissulega er enn í vinnslu og þá helst þau gildi sem þar er að finna. Ég vitna í hugtak stefnunnar sem skilgreint er á eftirfarandi veg, „heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og örorku“. Vil ég einnig vitna í skilgreiningu hugtaksins jöfnuður samkvæmt stefnunni, „jöfnuður til heilsu snýst um að allir hafi jöfn tækifæri til að varðveita og bæta heilsu sína“. Í stefnunni er einnig tekið fram að hjá börnum og ungmennum sé grunnurinn sé lagður að framtíðarheilsu einstaklingsins en líkt og borgarstjóri sagði á borgarstjórnarfundi 1. júní 2021 missir maður mikið þegar maður missir heilsuna. Ég get með engu móti tengt framangreind hugtök og fullyrðingar stefnunnar við aðstæður barnanna í Fossvogsskóla heldur þvert á móti hefur verið gert lítið úr þeim heilsubresti sem foreldrar og starfsmenn hafa lengi reynt að benda á. Falla þessi börn utan stefnunnar? Það er mikinn lærdóm að draga af þessu máli sem er hvergi nærri lokið. Ég vona að borgaryfirvöld hætti með innantóm loforð til foreldra og starfsmanna um að gera eitthvað. Heldur þyrfti að axla ábyrgð, viðurkenna mistök og fyrst og fremst gera betur. Höfundur er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skóla - og menntamál Reykjavík Mygla í Fossvogsskóla Borgarstjórn Grunnskólar Mest lesið Carbfix: Stærsta framlag Íslands í loftslagsmálum heimsins Sævar Freyr Þráinsson Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir Skoðun Halldór 05.07.2024 Halldór Að óttast blokkir Ásta Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Carbfix: Stærsta framlag Íslands í loftslagsmálum heimsins Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason skrifar Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar Skoðun Líf og dauði leikur á hnífsegg Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að eiga tertuna og borða hana líka – svar til formanns Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hik er sama og tap Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason skrifar Skoðun Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Að óttast blokkir Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Engin gúrka hjá Blaðamannafélaginu Sigríður Dögg Auðunsdóttir,Freyja Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Ert þú í góðu netsambandi? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kaupin á eyrinni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir skrifar Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hljóð úr horni Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Strámaðurinn mikli Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Árið er 2024 Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Samkeppni í nýju ljósi Páll Hermannsson skrifar Skoðun Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Rúnar Sigurjónsson skrifar Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun