Lögin sem Eydís flutti voru Dagdraumur, Wandering I, Fyrir Mikael, Midnight Moon (ft. GDRN), Brotin og The Northern Sky. Upptökur fóru fram Hljóðriti Studios Hafnarfirði og Einar Egils sá um leikstjórn. Að verkefninu komu einnig Ívar Ívarsson og Guðmundur Kristinn Jónsson.
Eydís flytur sjálf lögin sín á píanó og söngkonan GDRN syngur með henni í ótrúlega fallegri útgáfu af laginu þeirra Midnight Moon. Friðjón Jónsson leikur á píanó, Viktor Orri Árnason, Vera Panitch og Guðbjartur Hákonarson leika á fiðlu og Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir á selló.
Tónleikana má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Eydís hefur vakið mikla athygli fyrir sína fyrstu plötu Bylur og í vikunni tilkynnti hún að í október kemur hún fram í Royal Albert Hall. „Draumar geta ræst“ segir Eydís um tónleikana.