Innlent

Einn greindist smitaður af Covid-19

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sýnataka vegna Covid hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins
Sýnataka vegna Covid hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins Vísir/Vilhelm

Einn greindist smitaður af kórónuveirunni innanlands í gær. Þetta kemur fram í nýjum tölum á covid.is

Tveir greindust með mótefni á landamærum.

Enginn greindist innanlands í fyrradag. Í einangrun eru nú 43, en voru 45 í gær. Í sóttkví eru 104, en voru 217 í gær. Einn er á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær.

128.645 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 86.326 til viðbótar. Teljast nú 43,6 prósent einstaklinga sextán ára og eldri fullbólusettir og 29,2 prósent hálfbólusettir.

6.617 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru þrjátíu látin.

Alls voru tekin 447 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 2.108 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 1.257 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×