Slóvenía vann 2-1 sigur á Póllandi er liðin mættust í E-riðlinum í St. Pétursborg í dag en í E-riðlinum eru einnig Spánn og Svíþjóð.
Pólland gerði 2-2 jafntefli við íslenska landsliðið í aðdragandanum og þar leit pólska liðið ekki vel út en í dag var það leikur á EM.
Pólverjarnir voru sterkari framan af leik en það voru hins vegar Slóvakirnir sem komust yfir á 18. mínútu er Wojciech Szczesny gerði sjálfsmark.
Róbert Mak átti magnaðan sprett. Hann þrumaði svo boltanum í átt að marki Póllands úr þröngu færi en boltinn fór í nærstöngina og af Wojciech Szczesny og í netið.
Þannig stóðu leikar í hálfleik en síðari hálfleikur var ekki mínútu gamall er Karol Linetty jafnaði metin. Hann fékk boltann út í teiginn og kláraði færið vel.
Það skánaði ekki ástandið hjá Póllandi er Grzegorz Krychowiak fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 62. mínútu. Pólskir því einum færri síðasta hálftímann.
Það var Ítalíumeistarinn Milan Skriniar sem skoraði sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok. Boltinn féll til hans eftir hornspyrnu og þrumaði honum boltanum í netið.
Jan Bednarek var nærri því að jafna metin undir lok leiksins en skot hans rétt framhjá. Lokatölur 2-1 sigur Slóvakíu sem eru því með þrjú stig en Pólland án stiga.
Svíþjóð og Spánn mætast síðar í kvöld.
✅ Big W for Slovakia!
— SPORF (@Sporf) June 14, 2021
👀 Do they have what it takes to make it out of Group E? #EURO2020 #POL #SVK pic.twitter.com/Qh39J29B1m

EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.