Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Tesla.
Stöðin í Vatnagörðum er við þjónustumiðstöð Tesla í Reykjavík og er fyrsta V3 stöðin í Reykjavík. Þar verða þrír ofurhleðslubásar í boði fyrir Tesla eigendur.
Stöðin á Kirkjubæjarklaustri er staðsett nálægt Hótel Klaustri og verða fjórir ofurhleðslubásar í boði fyrir Tesla eigendur.
Tesla heldur áfram að vaxa hratt á Íslandi og við teljum að öflugar, notendavænar hleðslustöðvar séu lykilskref í þá átt að gera fólki kleift að skipta yfir í rafbíla.
Fleiri ofurhleðslustöðvar í farvatninu
Tesla er með fimm hleðslustöðvar á Íslandi, að Vatnagörðum og Kirkjubæjarklaustri meðtöldum. Tesla er með metnaðarfull plön um uppbyggingu hleðsluinnviða á Íslandi. Tesla mun opna fleiri ofurhleðslustöðvar á Íslandi með endanlegt markmið um að öll helstu sveitarfélög og áfangastaðir muni verða aðgengilegir fyrir Tesla bifreiðar.
Næsta kynslóð ofurhleðslustöðva
V3 ofurhleðslustöðvar geta náð allt að 250kW , sem þýðir enn skemmri hleðslutíma. Model 3 í Long Range útgáfu getur náð allt að 120 km. drægni á um fimm mínútum í V3 ofurhleðslustöð.
V3 ofurhleðslustöðvar í Evrópu nota eingöngu CCS tengi. Allir Model 3 bílar koma með CCS tengi. Model S og Model X eigendur geta notað nýjar hleðslustöðvar með millistykki, sem hefur fylgt öllum Model S og Model X síðan í maí 2019.