Sport

Dagskráin í dag: 8-liða úrslit á EM hefjast

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jorginho og Ciro Immobile verða í eldlínunni í stórleik kvöldsins.
Jorginho og Ciro Immobile verða í eldlínunni í stórleik kvöldsins. Getty/Andrea Staccioli

Biðinni er lokið, tveir dagar sem liðu eins og tvö ár, eftir því að Evrópumót karla í fótbolta fari aftur af stað. 8-liða úrslit mótsins hefjast í dag með tveimur hörkuleikjum.

Stöð 2 EM 2020

Sviss og Spánn ríða á vaðið í 8-liða úrslitunum á EM í dag. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 15:20 og hefst hann sjálfur klukkan 16:00 í St. Pétursborg. Leikurinn verður sýndur bæði á Stöð 2 EM og Stöð 2 Sport 2.

Síðari leikur dagsins er þá stórleikur Belgíu og Ítalíu. Upphitun fyrir þann leik hefst klukkan 18:30 áður en liðin etja kappi klukkan 19:00 á Allianz-vellinum í Munchen.

Guðmundur Benediktsson og Helena Ólafsdóttir munu svo gera daginn upp í EM í dag klukkan 21:00 í kvöld.

Stöð 2 Sport 3

Íslendingalið Kristianstad sækir Häcken heim klukkan 17:00 og hefst bein útsending frá þeim klukkan 16:55 á Stöð 2 Sport 3.

Stöð 2 Sport 4

Volunteers of America-mótið á LPGA-mótaröðinni heldur áfram í dag og hefst bein útsending frá því á Stöð 2 Sport 4 klukkan 21:00 í kvöld.

Stöð 2 Golf

Opna írska mótið í golfi hefst strax klukkan 9:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf og þá hefst önnur bein útsending frá mótinu klukkan 15:00 í dag.

Þá heldur Rocket Mortgage mótið, sem hluti er af PGA-mótaröðinni, áfram og hefst bein útsending frá því klukkan 19:00.

Beinar útsendingar sem fram undan eru á rásum Stöðvar 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×