Innlent

Þyrla sótti slasaðan mann í Herdísarvík

Árni Sæberg skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRO.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRO. Landhelgisgæsla Íslands

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti mann sem skorið hafði sig á járni í Herdísarvík í Árnessýslu.

Atvikið varð á fjórða tímanum í dag. 

Maðurinn var fluttur á Borgarspítalann til aðhlynningar. Landhelgisgæslan getur ekkert gefið upp um líðan mannsins að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×