Innlent

Þriggja bíla á­rekstur á Miklu­braut

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Miklubraut var lokað að hluta til nú síðdegis, vegna áreksturs.
Miklubraut var lokað að hluta til nú síðdegis, vegna áreksturs. vísir

Þiggja bíla árekstur var á Miklubraut nú síðdegis. Áreksturinn átti sér stað nálægt Stakkahlíð og var Miklubraut lokað að hluta til.

Engin meiriháttar slys urðu á ökumönnum eða farþegum, en einn var þó fluttur á slysadeild með minniháttar áverka.

Slökkvilið hefur lokið störfum á vettvangi og að sögn slökkviliðs verður opnað verður fyrir umferð um Miklubraut fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×