Erlent

Fresta réttar­höldum yfir 47 lýð­ræðis­sinnum um ellefu vikur

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ákærur á hendur lýðræðissinnanna 47 hafa verið harðlega gagnrýndar og stuðningsmenn þeirra krefjast að þeim verði sleppt úr haldi.
Ákærur á hendur lýðræðissinnanna 47 hafa verið harðlega gagnrýndar og stuðningsmenn þeirra krefjast að þeim verði sleppt úr haldi. Getty/Anthony Kwan

Saksóknarar hafa frestað réttarhöldum yfir 47 lýðræðissinnum í Hong Kong, sem blésu til prófkjörs sem dæmt var ólöglegt, um ellefu vikur.

Búist var við því að saksóknarar myndu óska eftir að málið yrði flutt fyrir dómstóli sem getur gefið harðari refsingar en þess í stað óskuðu þeir eftir frestun, þar sem þeir segjast þurfa að undirbúa dómsmálið betur.

Hinir 47 ákærðu voru í 55 manna hópi sem var handtekinn af þjóðaröryggislögreglunni þann 6. janúar síðastliðinn fyrir að hafa brotið umdeild öryggislög Hong Kong. Meðal ákærðu eru kennarar, opinberir starfsmenn og fyrrverandi, lýðræðissinnaðir, þingmenn Hong Kong. Fréttastofa Guardian greinir frá. 

Meirihluti fólksins í hópnum hefur setið í fangelsi síðan í febrúar síðastliðnum. Tólf voru leyst úr haldi gegn tryggingu eftir að fangelsisyfirvöld voru sökuð um að meina þeim að baða sig og hvílast og fjórir höfðu verið fluttir á sjúkrahús úr fangelsinu.

Hópurinn hefur verið ákærður fyrir samsæri gegn stjórnvöldum, sem er brotlegt samkvæmt öryggislögunum sem voru innleidd fyrir rúmu ári, en hópurinn blés til óformlegs prófkjörs í júlí 2020 í aðdraganda þingkosninga í héraðinu, sem síðar var frestað vegna kórónuveirufaraldursins. Prófkjör fara almennt ekki fram í Hong Kong en ýmsir stjórnmálaflokkar hafa haldið prófkjör, þar á meðal stjórnarflokkar. Niðurstöður þeirra hafa þó aldrei verið bindandi.

Stjórnvöld litu hins vegar á prófkjörið sem andstöðu gegn þáverandi yfirvöldum, í kjölfar árslangra mótmæla, og talið er að allt að 600 þúsund manns hafi tekið þátt í prófkjörinu. Yfirvöld í Peking lýstu því yfir að prófkjörið hafi verið ólöglegt og sex mánuðum seinna nýttu yfirvöld í Hong Kong sér öryggislögin, sem innleidd voru að frumkvæði Kína, og lét handtaka alla frambjóðendur og skipuleggjendur prófkjörsins.

Öryggislögin voru lögð til af kínverskum stjórnvöldum og samþykkt af yfirvöldum í Hong Kong aðeins tíu dögum áður en prófkjörið fór fram. Öryggislögin eru mjög ströng og banna alla andstöðu gegn yfirvöldum í Kína.


Tengdar fréttir

Hvetur foreldra, kennara og aðra til að vakta ungmenni og tilkynna þau til lögreglu

Lögreglan í Hong Kong hefur handtekið níu manns vegna meintrar hryðjuverkaógnar. Meðal hinna handteknu eru sex krakkar í menntaskóla en fólkið er fimmtán til 39 ára. Lögreglan segir þau hafa leigt hótelherbergi til að framleiða þar sprengjur og markmið hópsins hafi verið að gera sprengjuárásir á skotmörk í borginni.

Lýð­ræðis­dag­blaði gert að hætta út­gáfu og blaða­menn hand­teknir

Dagblaðinu Apple Daily hefur verið gert að hætt útgáfu en það hefur verið einn af hornsteinum lýðræðisbaráttumanna í Hong Kong undanfarin ár. Blaðið er það stærsta sinnar tegundar í héraðinu en vefsíða blaðsins mun loka á miðnætti í dag og síðasta útgáfa prentsins mun koma út á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×