Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt ákvörðun ríkislögreglustjóra verður óheimilt að fljúga dróna, eða fjarstýrðu loftfari, innan við 400 metra radíuss frá skipinu, bæði meðan það er innan íslenskrar landhelgi og meðan það liggur við bryggju.
Bannið verður í gildi frá 18. júlí til og með 22. júlí, allan sólarhringinn.
Skipið, sem fór jómfrúarferð sína árið 1999, er tundurspillir og hefur verið í notkun bandaríska sjóhersins frá árinu 2000. Skipið var meðal annar notað í aðgerð sérsveita sjóhersins (Navy SEALs) árið 2014, þegar ráðist var um borð í olíutankskipið Morning Glory, sem hafði verið tekið yfir af vopnuðum skæruliðum undan ströndum Kýpur.