Erlent

Versta bylgjan hafin síðan veiran reið yfir Wu­han

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Yfirvöld hafa fyrirskipað að allar 9,3 milljónir íbúa í Nanjing skuli skimaðar fyrir Covid-19.
Yfirvöld hafa fyrirskipað að allar 9,3 milljónir íbúa í Nanjing skuli skimaðar fyrir Covid-19. Getty/Shao Ying

Ný bylgja kórónuveirufaraldursins ríður nú yfir Kína og er hún sögð sú versta síðan fyrsta bylgja faraldursins reið yfir fyrir rúmu ári síðan. Nýjasta bylgjan hófst í borginni Nanjing og hefur breiðst út til fimm héraða auk Peking.

Meira en 200 hafa smitast af veirunni frá því að hún greindist á flugvelli Nanjing þann 20. júlí síðastliðinn. Ríkisútvarp Kína segir að um verstu bylgju faraldursins sé að ræða síðan veiran greindist fyrst í Wuhan í nóvember 2019. Breska ríkisútvarpið greinir frá. 

Flugvellinum í Nanjing hefur verið lokað og verður ekki flogið aftur um hann fyrr en 11. agúst næstkomandi. Þá hafa yfirvöld gripið til skimunarátaks: allar 9,3 milljónir íbúa Nanjing verða skimaðar fyrir veirunni.

Langar raðir hafa myndast fyrir utan skimunarstöðvar en yfirvöld hafa hvatt íbúa til að bera grímur fyrir vitum, halda metra fjarlægð og takmarka tal á meðan á biðinni stendur.

Samkvæmt yfirvöldum er það Delta-afbrigði veirunnar sem um er að ræða en afbrigðið er talið smitast mun auðveldar milli fólks og leiða til alvarlegri veikinda hjá fleirum. Yfirvöld segja að veiran hafi dreifst víðar vegna þess að smitaðir hafi verið staddir á mannmörgum flugvelli.

Veiran er sögð hafa borist til Ninjang með rússneskum ræstitæknum sem voru um borð í flugvél sem lenti í Ninjang. Að sögn yfirvalda fylgdu þeir ekki ströngum sóttvarnareglum.

Bylgjan er þó sögð á byrjunarstigi og enn sé hægt að ná utan um hana. Sjö af þeim tvö hundruð sem hafa greinst smitaðir liggja inni á sjúkrahúsi mikið veikir. Fjöldi smitaðra hefur leitt til þess að einhverjir hafi velt upp þeirri spurningu hvort kínversk bóluefni gegn veirunni virki nokkuð gegn Delta-afbrigðinu. Ekki liggur þó fyrir hvort hinir smituðu séu bólusettir.

Fjöldi ríkja í Suðaustur-Asíu, sem keypt hafa kínversk bóluefni, tilkynntu í vikunni að þau hyggist snúa sér til annarra bóluefnaframleiðenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×