Mbl.is greindi fyrst frá smitunum en Vísir ræddi einnig við Hörð Orra Grettisson, framkvæmdastjóra Herjólfs.
Honum skilst að einn aðili úr hópnum hafði verið orðinn slappur fyrir ferðina til Eyja og því hafi hópurinn allur ákveðið að fara í sýnatöku. Hópurinn hafi átt að fara í sóttkví, eins og aðrir sem fara í sýnatöku, þar til niðurstöður bærust.
Hópurinn hafi hins vegar ekki virt þær reglur og haldið af stað í ferðalag frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja með Herjólfi. Eftir komuna til Vestmannaeyja hafi niðurstöðurnar borist og reyndust þær jákvæðar.
Hópurinn var þá sendur aftur til Landeyjarhafnar með Herjólfi en var látinn sitja inni í rútu til þess að vera í einangrun frá öðrum farþegum.