Aðstoðarmaður Cuomo segir af sér Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. ágúst 2021 06:49 DeRosa er sögð hafa hylmt yfir með Cuomo. epa/Justin Lane Melissa DeRosa, aðstoðarmaður Andrew Cuomo, ríkisstjóra New York, hefur sagt upp störfum. Nafn DeRosa kemur fram 187 sinnum í skýrslu saksóknara um kynferðislega áreitni Cuomo í garð kvenna, þar sem hún er meðal annars sökuð um að hafa hylmt yfir með yfirmanni sínum og hótað að minnsta kosti einum þolanda.
Cuomo neitar því að hafa gert nokkuð af sér og hefur heitið því að halda áfram sem ríkisstjóri en á mögulega yfir höfði sér vantraustsyfirlýsingu og ákærur. Í yfirlýsingu sinni segir DeRosa að síðust tvö ár hafi reynt á hana bæði andlega og tilfinningalega. Hún sé hins vegar þakklát fyrir að hafa fengið að starfa fyrir íbúa New York og með hæfileikaríkum samstarfsfélögum. Eftirlitsnefnd ríkisþings New York mun funda í dag og fjalla um skýrslu saksóknara. Á fundinum verður einnig rætt um mögulegar ákærur á hendur Cuomo. Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur þegar kallað eftir því að hann segi af sér. Skýrslan um meint kynferðisbrot ríkisstjórans byggir á fimm mánaða vinnu þar sem rætt var við um 200 einstaklinga, meðal annars samstarfsfólk Cuomo og þær konur sem hafa sakað hann um kynferðislega áreitni.
Bandaríkin MeToo Mál Andrew Cuomo Tengdar fréttir Ein kvennanna kærir Cuomo fyrir áreitni Kona sem sakar Andrew Cuomo, ríkisstjóra New York, um að hafa þuklað á brjósti sínu hefur lagt fram kæru á hendur honum. Kæran er sú fyrsta sem vitað er til vegna kynferðisáreitni ríkisstjórans. 6. ágúst 2021 22:29 Biden hvetur Cuomo til að segja af sér Þrýstingur á að Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segi af sér stigmagnast nú vegna ásakana um kynferðislega áreitni hans. Joe Biden Bandaríkjaforseti og flokksbróðir ríkisstjórans bættist í hóp þeirra sem hvetja hann til þess að stíga til hliðar í dag. 3. ágúst 2021 23:27 Hafnar því að hafa áreitt konur kynferðislega Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, hafnaði því að hann hefði nokkru sinni snert konur á óviðeigandi hátt eða haft uppi óviðeigandi kynferðislega tilburði á blaðamannafundi í dag. Hann er sakaður um að hafa áreitt fjölda kvenna. 3. ágúst 2021 19:23 Sakaður um áreitni í garð minnst ellefu kvenna Andrew M. Cuomo, ríkisstjóri New York, áreitti konur kynferðislega og beitti sér gegn einni þeirra sem sakaði hann opinberlega um áreitni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Letitia James, ríkissaksóknari New York, opinberaði nú fyrir skömmu. 3. ágúst 2021 15:27 Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Erlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Fleiri fréttir Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Sjá meira
Ein kvennanna kærir Cuomo fyrir áreitni Kona sem sakar Andrew Cuomo, ríkisstjóra New York, um að hafa þuklað á brjósti sínu hefur lagt fram kæru á hendur honum. Kæran er sú fyrsta sem vitað er til vegna kynferðisáreitni ríkisstjórans. 6. ágúst 2021 22:29
Biden hvetur Cuomo til að segja af sér Þrýstingur á að Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segi af sér stigmagnast nú vegna ásakana um kynferðislega áreitni hans. Joe Biden Bandaríkjaforseti og flokksbróðir ríkisstjórans bættist í hóp þeirra sem hvetja hann til þess að stíga til hliðar í dag. 3. ágúst 2021 23:27
Hafnar því að hafa áreitt konur kynferðislega Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, hafnaði því að hann hefði nokkru sinni snert konur á óviðeigandi hátt eða haft uppi óviðeigandi kynferðislega tilburði á blaðamannafundi í dag. Hann er sakaður um að hafa áreitt fjölda kvenna. 3. ágúst 2021 19:23
Sakaður um áreitni í garð minnst ellefu kvenna Andrew M. Cuomo, ríkisstjóri New York, áreitti konur kynferðislega og beitti sér gegn einni þeirra sem sakaði hann opinberlega um áreitni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Letitia James, ríkissaksóknari New York, opinberaði nú fyrir skömmu. 3. ágúst 2021 15:27