Innlent

Ráð­herra sam­þykkir bólu­setningu barna

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Bólusetning barna á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram í Laugardalshöll dagana 23. og 24. ágúst. Ætla má að meðalaldurinn í höllinni þá daga verði umtalsvert lægri en þegar þessi mynd var tekin.
Bólusetning barna á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram í Laugardalshöll dagana 23. og 24. ágúst. Ætla má að meðalaldurinn í höllinni þá daga verði umtalsvert lægri en þegar þessi mynd var tekin. Vísir/Egill

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19, með bóluefni Pfizer.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að ástæða þess að notast verði við Pfizer-bóluefnið sé að meiri reynsla liggi fyrir um bólusetningar barna 12 til 15 ára með því efni en bóluefni Moderna, sem þó hefur einnig fengið markaðsleyfi fyrir aldursjópinn.

„Ef allir þiggja boð um bólusetningu þarf um 35.000 bóluefnaskammta til að fullbólusetja allan aldurshópinn. Miðað við birgðir af Pfizer og afhendingaráætlanir á næstu vikum ætti að vera unnt að ljúka bólusetningu hópsins með síðari bólusetningu um miðjan september,“ segir í tilkynningunni.

Bólusetning barna á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram í Laugardalshöll dagana 23. og 24. ágúst.

„Foreldrar sem þiggja bólusetningu fyrir börn sín verða beðnir um að fylgja börnum sínum í bólusetningu og veita þar með upplýst samþykki fyrir bólusetningunni ásamt því að vera börnunum til halds og trausts. Heilsugæslustöðvar í öðrum heilbrigðisumdæmum eru að skipuleggja framkvæmd bólusetningar með svipuðum hætti og á höfuðborgarsvæðinu.

Embætti landlæknis mun birta nánari upplýsingar varðandi bólusetningar barna og heilsugæslustöðvar í hverju heilbrigðisumdæmi munu birta upplýsingar og auglýsa fyrirkomulag bólusetninga og tímasetningar á hverjum stað,“ segir jafnframt í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Rauð­glóandi síma­línur vegna bólu­­setningar barna

Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir gríðarlegan áhuga meðal foreldra á að láta bólusetja börnin sín við kórónuveirunni. Börn fædd síðar en 2005 verða ekki bólusett fyrr en í fyrsta lagi eftir að skólahald hefst í haust.

Vara við því að óbólu­sett börn ferðist til út­landa

Margir Íslendingar stefna á ferðalög í sumar, bæði innanlands og utan, og er fólk farið að flykkjast út á Keflavíkurflugvöll til að halda í frí til útlanda. Einhverjir hafa þó velt fyrir sér ágæti þess að taka börnin með í frí en börn undir 16 ára aldri hafa flest hver ekki verið bólusett þó svo að fullorðna fólkið hafi nær allt verið það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×