Innlent

Eitt barn reyndist smitað á Álftaborg

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Börnin á Álftaborg mæta aftur á leikskólann á morgun.
Börnin á Álftaborg mæta aftur á leikskólann á morgun. Vísir/Vilhelm

Eitt barn á leikskólanum Álftaborg í Safamýri hefur greinst smitað af kórónuveirunni. Börn og starfsmenn voru send í sóttkví eftir að starfsmaður greindist smitaður á föstudaginn.

Börn og starfsfólk fóru í sýnatöku í gær og greindist eitt barn smitað samkvæmt tölvupósti frá leikskólastjóra til forráðamanna barnanna. Enginn starfsmaður reyndist smitaður.

Leikskólinn verður aftur opnaður á morgun 18. ágúst og þeirri reglu viðhaldið að tekið er á móti börnum við innganginn að skólanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×