Innlent

Slökkvi­lið kallað út vegna elds við Hring­braut

Atli Ísleifsson skrifar
Útkallið barst klukkan 8:15.
Útkallið barst klukkan 8:15. Vísir/Vilhelm

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í morgun eftir að mikill eldur hafði komið upp í grilli við hús sem stendur við Hringbraut.

Eldurinn hafði svo dreift sér í pall þar sem grillið var að finna.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði barst útkallið um klukkan 8:15. Búið sé að ná tökum á eldinum og er engin hætta talin vera á ferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×