Innlent

Eldur kviknaði í bíl á Kringlu­mýrar­braut

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Eldurinn kviknaði í bílnum rétt um hálf sex í kvöld.
Eldurinn kviknaði í bílnum rétt um hálf sex í kvöld. Aðsend/Sturla

Eldur kviknaði í bíl á Kringlumýrarbraut fyrir utan Suðurver rétt um klukkan hálf sex. Slökkvilið er á staðnum og hefur tekist að slökkva í bílnum.

Útkall barst slökkviliði um klukkan 17:35 og tókst því að ráða niðurlögum eldsins á tiltölulega stuttum tíma. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir í samtali við Vísi að einn dælubíll hafi verið sendur á staðinn.

Hann viti þó ekki mikið meira um stöðuna en svo virðist sem einhver töf hafi orðið á umferð vegna slökkvistarfsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×