Innlent

43 greindust með kórónu­veiruna í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Um 11 þúsund hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Um 11 þúsund hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

43 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 27 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 63 prósent nýgreindra. Sextán voru utan sóttkvíar, eða um 37 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

Alls eru nú 776 í einangrun, en voru 816 í gær. 2.045 eru nú í sóttkví, en voru 2.333 í gær. 685 eru nú í skimunarsóttkví.

Þrettán þeirra sem greindust í gær voru fullbólusettir en þrjátíu óbólusettir.

Tíu eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær. Enginn er á gjörgæslu.

Enginn greindist á landamærum í gær.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 252,2, en var 257,2 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú15,0, en var 15,5 í gær.

Alls hafa 10.956 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 33 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Tekin voru 1.992 einkennasýni í gær, 1.029 sýni á landsmærum og þá greindust 844 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×