Leikjavísir

Höskuldur og Gary lögðu allt undir á móti Birki Má og Birgi

Tinni Sveinsson skrifar
Gary, Birkir Már og Birgir.
Gary, Birkir Már og Birgir. Albumm

Höskuldur Gunnlaugsson, Gary Martin, Birkir Már Sævarsson og Birgir Steinn Stefánsson keppa í FIFA 21 í leikjaþættinum Galið. Þátturinn er gerður af Albumm og kemur út hér á Vísi.

Tvö tveggja manna lið keppa í hverjum þætti af Galið. Það lið sem vinnur heldur áfram að keppa við næsta lið og svo framvegis. Í fyrsta þætti komust tónlistarmaðurinn Ízleifur og umboðsmaðurinn Logi Snær áfram. Næst voru það síðan tónlistarmennirnir Bjarki Ómarsson, eða Bomarz, og Victor Guðmundsson, eða Doctor Victor, sem fóru í gegn. Í síðasta þætti voru það Kristall Máni Ingason og Adam Ægir Pálsson, fótboltamenn úr Víkingi, sem tryggðu sig áfram.

Nú keppa Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, og Gary Martin, fótboltakappi hjá Selfossi, og landsliðskempan og Valsarinn Birkir Már Sævarsson og tónlistarmaðurinn Birgir Steinn Stefánsson.

Klippa: Höskuldur og Gary vs. Birkir Már og Birgir Steinn

Framleiðslufyrirtækið AlbummTV og vefmiðillinn Albumm.is framleiða þessa nýju leikjaþætti í samstarfi við SnorriBros, Vísi og Stöð 2 Esport. Þættirnir voru teknir upp á veitingastaðnum Le Kock í Hafnarstræti.

Þættirnir eru sjö talsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.