Innlent

Umboðsmaður leggur til gjafsókn fyrir foreldra Heklu Lindar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðrún Haraldsdóttir og Jón Ingi Gunnarsson, foreldrar Heklu Lindar.
Guðrún Haraldsdóttir og Jón Ingi Gunnarsson, foreldrar Heklu Lindar. Vísir/vilhelm

Umboðsmaður Alþingi hefur lagt til við dómsmálaráðherra að foreldrum Heklu Lindar Jónsdóttur verði veitt gjafsókn í skaðabótamáli gegn íslenska ríkinu vegna andláts dóttur þeirra í kjölfar afskipta lögreglu af henni.

Hekla Lind Jónsdóttir var aðeins 25 ára þegar hún lést eftir að lögregla hafði afskipti af henni þegar hún var í geðrofsástandi eftir neyslu fíkniefna þann 9. apríl 2019.

Foreldrarnir kvörtuðu til umboðsmanns þar sem þau gerðu meðal annars athugasemdir við niðurstöðu ríkissaksóknara sem staðfesti ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður mál vegna andlátsins. Þau ákváðu að höfða skaðabótamál og óskuðu eftir að umboðsmaður nýtti heimild sína til að leggja til að þeim yrði veitt gjafsókn.

Hekla Lind Jónsdóttir var aðeins 25 ára þegar hún lést eftir að lögregla hafði afskipti af henni þegar hún var í geðrofsástandi eftir neyslu fíkniefna vorið 2019. Ítarlega var fjallað um málið í fréttaskýringaþættinum Kompás á Vísi í fyrra.

Umboðsmaður tók málið fyrir og segir í niðurstöðu sinni að rétturinn til lífs og mannhelgi njóti verndar samkvæmt íslenskum stjórnlögum og alþjóðasamningum um mannréttindi. Af því leiðii að gera verði ríkar kröfur til þeirrar valdbeitingar sem talin er nauðsynleg við framkvæmd handtöku og þá því frekar þegar handtaka leiði til líkamstjóns eða dauða.

„Af réttinum til lífs leiðir einnig að tryggja ber að andlát sé upplýst með viðhlítandi hætti, s.s. opinberri rannsókn, og fyrir hendi séu úrræði til að þeir sem bera ábyrgð á andláti séu látnir sæta henni með einum eða öðrum hætti, þar á meðal með einkaréttarlegum úrræðum,“ segir í niðurstöðu umboðsmanns.

Hekla Lind var með margþætta áverka eftir átökin samkvæmt krufningaskýrslu.grafík/hafsteinn

Umboðsmaður telur ljóst að rannsókn á andlátinu lúti að mikilvægum hagsmunum foreldranna og að við þær aðstæður sem uppi eru sé eðlilegt að dómstólar leysi úr mögulegum ágreiningi í málinu.

„Í ljósi laga, reglna og allra málavaxta, og þar sem umboðsmaður taldi ekki hægt að ganga út frá því að þau ættu óskilyrtan rétt til gjafsóknar á grundvelli laga um meðferð sakamála eða annarra laga, lagði hann til við dómsmálaráðherra að þeim yrði veitt gjafsókn í málinu. Í því fælist ekki nein afstaða til atvika málsins eða lagaatriða að öðru leyti en því að þau vafaatriði sem uppi væru, væru þess eðlis að rétt væri að foreldrarnir fengju óhindrað leyst úr þeim fyrir dómstólum sér að skaðlausu.“

Umfjöllun Kompás má sjá í heild að neðan.


Tengdar fréttir

Misstu dóttur sína eftir átök við lögreglumenn

Síðastliðið vor lést ung kona eftir átök við lögreglumenn sem höfðu afskipti af henni þegar hún var í geðrofsástandi. Lögreglumennirnir voru ekki ákærðir fyrir brot í starfi þrátt fyrir að réttarmeinafræðingur fullyrði að aðgerðir þeirra hafi átt umtalsverðan þátt í dauða hennar. Í Kompás ræðum við við foreldra konunnar sem telja lögreglu hafa farið offari við handtökuna.

Senda lögreglu en ekki sjúkrabíl: Verklag Neyðarlínunnar lýsi fordómum

Þegar óskað er eftir aðstoð er samkvæmt verkferlum Neyðarlínunnar fyrsta viðbragð að senda lögreglu en ekki sjúkrabíl ef einstaklingur er í geðrofi, en ekki slasaður. Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir þetta lýsa fordómum og telur nauðsynlegt að endurskoða verklagið. Mikilvægt sé að koma fólki sem allra fyrst undir læknishendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×