Einkasonur lagði eiginmann móður í dramatísku erfðamáli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. september 2021 16:44 Dómur var kveðinn upp í Hæstarétti í gær. Vísir/vilhelm Hæstiréttur hefur fallist á kröfu einkasonar um að dánarbú móður hans verði tekið til opinberra skipta. Málið hafði flakkað úr héraði í Landsrétt og fékk áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar þar sem sonur konunnar hafði betur eftir margra ára baráttu við eftirlifandi eiginmann móður hans.
Móðirin giftist karlmanninum skömmu eftir að hafa verið greind með banvænan sjúkdóm. Þau höfðu gert með sér erfðaskrá um að það sem lifði hitt fengi óskiptan arf svo framarlega sem það hæfi ekki aðra sambúð. Eftir að maðurinn sló sér upp með sænskri konu krafðist einkasonurinn að búinu yrði skipt. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í mars að taka ætti búið til opinberra skipta. Eiginmaðurinn kærði þá niðurstöðu til Landsréttar sem komst að öndverðri niðurstöðu. Eiginmaðurinn ætti að sitja í óskiptu búi. Sonurinn var ekki sáttur við þá niðurstöðu og óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar sem samþykkir aðeins að taka fyrir brot af þeim málum sem rata til réttarins. Hæstiréttur taldi að dómur í málinu gæti haft fordæmisgildi um túlkun á heimild erfingja til þess að krefjast að dánarbú yrði tekið til skipta. Giftu sig skömmu eftir sjúkdómsgreiningu Sonurinn ólst upp hjá móður sinni sem var einstæð eftir að hafa skilið við föður hans árið 1981. Móðirin kynntist verðandi eiginmanni sínum við störf árið 2007. Hann flutti svo inn með henni árið 2011 eða 2012 og gengu þau í hjúskap í desember 2014. Móðirin greindist með sjúkdóm skömmu áður en þau giftu sig. Sjúkdómurinn átti eftir að draga hana til dauða. Fyrir milligöngu frænda hennar var fenginn lögmaður til að gera sameiginlega erfðaskrá fyrir hjónin og var hún undirrituð af hjónunum og vottum tólf dögum áður en hún andaðist. Í erfðaskránni kom fram að það væri sameiginleg ákvörðun hjónanna að hið langlífara gæti setið í óskiptu búi eftir lát hins skammlífara eins lengi og það vildi. Þessi heimild félli þó úr gildi ef það þeirra sem lengur lifði gengi í hjónaband að nýju eða hæfi sambúð. Sonurinn sendi eiginmanni móður bréf Nokkrum vikum eftir andlát eiginkonu sinnar óskaði eiginmaðurinn eftir heimild til setu í óskiptu búi og var veitt það leyfi nokkrum dögum síðar þann 19. september 2016 hjá Sýslumanninum á Suðurlandi. Sonurinn sendi bréf á eiginmanninn í ágúst 2020 þar sem honum var kynnt sú ósk sonarins að dánarbúinu yrði skipt. Í bréfinu var því haldið fram að vilji móðurinnar hefði aðeins staðið til að þess að eiginmaðurinn sæti í óskiptu búi í þrjú ár þótt fram kæmi í erfðaskránni að heimildin væri ótímabundin. Þar sem meira en þrjú ár væru liðin frá því að eiginmaðurinn fékk heimildina væri þess óskað að hinsti vilji hennar yrði virtur. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að í gögnum málsins væri óljóst hvort eiginmaðurinn hefði svarað erindi sonarins. Sonurinn krafðist svo opinberra skipta með öðru bréfi mánuði síðar. Óvígð sambúð með sænskri konu Eiginmaðurinn flutti utan vorið 2019 og var búsettur þar til haustsins 2020 þegar hann flutti aftur til Íslands. Hann hefur verið skráður til heimilis á Íslandi síðan í október 2020. Ágreiningur sonarins og eiginmannsins sneri að því hvort eiginmaðurinn hefði stofnað til óvíðgrar sambúðar með nafngreindri sænskri konu. Sonurinn taldi að þannig hefði heimild eiginmannsins til setu í óskiptu búi fallið niður miðað við fyrirmæli í erfðaskránni um að heimildin félli úr gildi ef hið langlífara hæfi sambúð að nýju. Hæstiréttur horfði til þess að hið skammlífara hjóna hefði ríkan rétt til að ráða því með erfðaskrá hvort skipti færu fram á búinu eða heimild veitt til setu í óskiptu búi. Einnig til þeirrar grundvallarreglu erfðaréttar að virða beri vilja hins látna eins og hann kæmi fram í erfðaskrá. Átti augljóslega að gæta að hag ættingja Í sameiginlegri erfðaskrá móðurinnar og eiginmannsins kom fram að að það hjónanna sem lengur lifði hefði heimild til að sitja í óskiptu búi eins lengi og það vildi. Sú heimild ætti þó að falla niður ef það þeirra sem lengur lifði gengi í hjónaband að nýju eða hæfi sambúð. Hæstiréttur segir að „að baki þessu bjó augljóslega sá vilji að kom í veg fyrir að langlífari maki“ gæti farið í nýtt samband og þannig horft fram hjá hagsmunum nánustu afkomenda sem ættu arf í óskiptu búi. Í þessu tilviki einkasonar konunnar eða tveggja sona eiginmannsins. Það hafi ekki einu sinni þurft að taka fram í erfðaskránni og er vísað til 13. málsgreinar í erfðalögum þar sem segir: „Nú gengur maki í hjúskap að nýju, og fellur þá niður heimild hans til setu í óskiptu búi.“ Ekkert sambærilegt ákvæði sé í erfðalögum um óvígða sambúð og því þurfi að skoða það sérstaklega. Hæstiréttur féllst ekki á með Landsrétti að lagaskilyrði skorti til að taka búið til skipta. Vissulega sambúð í Svíþjóð Hæstiréttur vísaði til þess sem fram kom í máli sonarins og eiginmannsins þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi. Þar greindi eiginmaðurinn frá því að hann og fyrrnefnd sænsk kona hefðu orðið kærustupar í febrúar eða mars 2020 og væru enn í sambandi. Þá kannaðist hann einnig við að hafa verið skráður til heimilis hjá henni frá maí til október 2020. Lagði Hæstiréttur til grundvallar að eiginmaðurinn hefði stofnað til sambúðar í skilningi erfðaskrárinnar og við það hafi fallið niður heimild hans til setu í óskiptu búi eftir eiginkonu sína. Því er lokaniðurstaðan, eftir umfjöllun á þremur dómstigum, að dánarbú konunnar verður tekið til opinberra skipta. Hæstiréttur felldi niður málskostnað en dæmdi eiginmanninn til að greiða syninum 1,2 milljónir króna í kærumálskostnað fyrir Landsrétti og Hæstarétti. Allur gjafsóknarkostnaður eiginmannsins fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hans upp á hálfa milljón króna. Dómur Hæstaréttar.
Dómsmál Fjölskyldumál Mest lesið Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Innlent „Þetta er bara rétt að byrja“ Innlent Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Erlent Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Innlent Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku Innlent Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum Innlent Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Innlent Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Innlent Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Innlent Yazan ekki fluttur úr landi og fær efnismeðferð Innlent Fleiri fréttir Yazan fær efnismeðferð og talstöðvar sprengdar „Setja fram hluti sem verða ekki dregnir upp úr hatti“ Ekki séð ástæðu til að leggjast gegn framgangi samgöngusáttmálans „Vottunin verið kölluð láglaunavottun af gárungunum“ Yazan ekki fluttur úr landi og fær efnismeðferð Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Segja ummæli Quang Le tilhæfulaus og ósönn Grænt ljós á Ekkó en ekki Baldr Sjúklingurinn þurfi að vera með í allri ákvörðunartöku Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Eigin sannfæring útskýri sögulegan klofning Sjálfstæðismanna Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Telur íslenska stjórnsýslu hafa brotið lög í máli Yazan Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Hafa auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar Lögmaður Yazans sakar yfirvöld um lögbrot „Þetta er bara rétt að byrja“ Um sjö milljónir söfnuðust í minningarsjóð með kertasölu Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni Ráðist í aðgerðir gegn samskiptaþjónustu sem glæpamenn notuðu Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum „Reglur samfélagsins mega ekki vera ómanneskjulegar“ „Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“ Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn þríklofinn um samgöngusáttmála Sjá meira