Bílar

Ford Bronco Raptor væntanlegur á næsta ári

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Grillið á Ford Bronco Raptor.
Grillið á Ford Bronco Raptor.

Ford hefur nú staðfest hið illa varðveitta leyndarmál að Ford Bronco Raptor er væntanlegur á næsta ári. Hann mun líklega nota 450 hestafla vélina sem F-150 Raptor notar og vera á sérstakri fjöðrun, stærri dekkjum og hærri en upprunalega útgáfan.

Hér er fremur óhjálplegt en töff kynningarmyndband frá Ford.

Fréttir af Raptor-vædda Bronco-num koma þegar margir kaupendur bíða enn eftir óbreyttum Bronco-um sem pantaðir voru fyrir rúmu ári. Ford er eins og margir bílaframleiðendur að glíma við framleiðslutafir og þar af leiðandi vanda við afhendingu. Ástæður þess eru margar en líkleg endanleg skýring er langvarandi áhrif kórónaveirufaraldursins á framleiðslu í heiminum.

Bronco Raptor mun samkvæmt heimildum Jalopnik innan úr herbúðum Ford verða afar fjárhagslega gefandi bíll fyrir Ford. Nánast óháð því hversu vel hann stendur sig í samanburði við óbreyttu útgáfuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×