Viðskipti erlent

Kínverjar banna rafmyntir og gröft

Kjartan Kjartansson skrifar
Verslun sem tekur við rafmyntinni bitcoin í Hong Kong. Bannið við rafmyntum gildir á meginlandi Kína.
Verslun sem tekur við rafmyntinni bitcoin í Hong Kong. Bannið við rafmyntum gildir á meginlandi Kína. Vísir/EPA

Stjórnvöld í Beijing lýstu öll viðskipti með rafmyntir ólögleg og bönnuðu svonefndan gröft eftir rafmyntum í dag. Bannið á meðal annars að hjálpa Kínverjum að ná markmiðum sínum um samdrátt gróðurhúsalofttegunda.

Seðlabanki Kína sagði að erlendum fyrirtækjum verði einnig bannað að bjóða upp á hvers kyns rafmyntarþjónustu í landinu, að sögn New York Times. Ellefu ríkisstofnanir gáfu út sameiginlega yfirlýsinga um að þau ætli sér að framfylgja banninu af hörku og refsa fyrir ólögleg rafmyntarviðskipti.

Sérstaklega var talað um rafmyntir eins og Bitcoin og Ether sem dæmi um útgefendur rafmynta sem væru ekki yfirvöld á sviði peningamála í tilkynningu seðlabankans. Það þykir benda til þess að ný kínversk rafmynt sem seðlabankinn hefur haft í þróun verði undanþegin banninu.

Kínversk stjórnvöld óttast að rafmyntir grafi undan valdi þeirra yfir fjármagnsflutningum. Þau hafa einnig hert tökin á tækni-, mennta- og fasteignageiranum í landinu.

Talað er um að „grafa upp“ rafmyntir en með því er átt við að tölvur eru notaðar til að leysa flóknar stærðfræðiformúlur sem þurfa að liggja fyrir þegar ný mynt er gefin út. Fyrir það fæst hluti af hinni nýslegnu mynt.

Rafmyntanámugröftur er gríðarlega orkufrekur. Þar sem rafmagn er framleitt með jarðefnaeldsneyti eins og kolum hlýst mikil losun gróðurhúsalofttegunda sem valda hnattrænni hlýnun á jörðinni af greftrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×