Reikna má með að flokkar sem náðu kjöri á Alþingi hefji nú vinnu við að tilnefna menn í bráðabirgðakjörbréfanefnd, sem undirbýr störf hinnar eiginlegu kjörbréfanefndar, sem svo tekur afstöðu til lögmætis kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Sú afstaða þarf svo að vera samþykkt í þinginu, þar sem þingmenn Norðvesturkjördæmis fá að kjósa, að sögn Birgis.
„Ég meina það er engin undantekning á því ef menn fá löglega útgefið kjörbréf frá landskjörstjórn hafa menn réttindi og skyldur sem þingmenn þangað til annað kemur í ljós.“
Þannig að þeir munu koma til með að greiða atkvæði í eigin máli?
„Þeir geta gert það ef á það reynir,“ segir Birgir Ármansson í samtali við fréttastofu.
Logi Már Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir að næstu dagar fari í fundarhöld og að farið verði yfir allar hliðar þessa máls.
„Þetta er bara mjög vond staða. Svona uppákoma er líkleg til að draga úr trausti fólks á kosningum sem eru þó þrátt fyrir allt einn grunnur okkar réttinda. Þetta er líka bara ægilega vond staða fyrir þessa einstaklinga sem núna eru í óvissu um sína stöðu.“
Óttastu að það gæti þurft að kjósa aftur?
„Ég ætla ekki að óttast neitt, ég held að það skipti bara máli að Alþingi komist að réttri niðurstöðu,“ segir Logi.
Frambjóðandi Pírata hefur lýst áhyggjum af því að það geti haft áhrif á ákvarðanir til dæmis stjórnarþingmanna við afgreiðslu þessa máls, að þeir hafa hagsmuni af því að niðurstaðan standi.
„Þetta er auðvitað fyrst og fremst mál lögfræðinga og dómara og annarra slíkra að kveða upp úr svona málum. En samkvæmt íslenskri stjórnskipan er það víst Alþingi og þá er nú eins gott að við vöndum okkur eins og við getum,“ segir Logi.
Birgir: „Ég held að allir sem nálgast þessi mál hljóti að meta það bara þannig að þeir vilji komast að þeirri niðurstöðu sem er réttust í samræmi við lög og stjórnarskrá. Það er útaf fyrir sig að mínu mati algerlega óljóst hvort það eru eitthvað frekar þingmenn stjórnarflokkanna eða stjórnarandstöðunnar sem hafi hagsmuni af því í þessu tiltekna máli.“