Á heimasíðu Rafíþróttasambands Íslands kemur fram að raðað verði í deildir eftir styrkleika, og að leikið verði í átta liða deildum, en neðri deildirnar verða spilaðar frá 27. október til 2. mars.
Leikin verður tvöföld umferð, og allar viðureignir verða svokallaðar Bo3, sem þýðir að liðið sem er fyrra til að sigra tvö kort vinnur viðureignina.
Eins og áður segir verður liðunum raðað í deildir eftir styrkleika, en þau lið sem tóku þátt í Deildarforkeppninni fá efstu lausu sætin í neðri deildunum. Þau lið sem ekki tóku þátt í deildarforkeppninni eru röðuð eftir styrkleika, þar sem farið er eftir fyrri árangri í deildum og/eða meðal „elo“ leikmanna á Faceit.
Allar upplýsingar varðandi neðri deildir Vodafonedeildarinnar má nálgast inni á heimasíðu Rafíþróttasambands Íslands með því að smella hér.