Mbappé sá rautt í sigri Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kylian Mbappé fékk sitt fyrsta rauða spjald í búningi Real Madrid í dag.
Kylian Mbappé fékk sitt fyrsta rauða spjald í búningi Real Madrid í dag. getty/Juan Manuel Serrano Arce

Kylian Mbappé var rekinn af velli þegar Real Madrid bar sigurorð af Alavés, 0-1, í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Eduardo Camavinga kom Real Madrid yfir með góðu skoti yfir utan vítateig á 34. mínútu.

Fjórum mínútum síðar fékk Mbappé rautt spjald fyrir gróft brot á Antonio Blanco, miðjumanni Alavés.

Þrátt fyrir að vera manni færri í rúman hálfleik hélt Real Madrid út og fagnaði mikilvægum sigri.

Real Madrid er með 66 stig í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona. Bæði lið eiga eftir að leika sjö leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira