Söluhús við Ægisgarð tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2021 Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. október 2021 09:00 Söluhúsin við Ægisgarð eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands i ár. Söluhús við Ægisgarð eftir Yrki arkitekta hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2021.
Næstu daga munum við hér á Vísi svipta hulunni af tilnefningum ársins 2021 en verðlaunaafhending og málþing því tengt mun fara fram í Grósku þann 29. október næstkomandi. Takið daginn frá! Í umsögn dómnefndar segir: „Söluhúsin við Ægisgarð eftir Yrki arkitekta eru lágstemmd og vel heppnuð röð húsa í góðu samtali við umhverfi sitt. Efnisnotkun og skali bygginganna er sá sami en ólíkar útfærslur á timburgrindum og -veggjum við hvert hús brjóta lengjuna upp og mynda ýmist skjól, bekki eða geymslurými. Viðbyggingar og borgarhúsgögn eru því inni í kerfi bygginganna og mynda rými fyrir fjölbreytta virkni og mannlíf á milli húsanna og í kringum þau. Að innan er burðarvirki húsanna sýnilegt, sem skapar hráa en um leið fíngerða stemningu. Byggingarnar eru glerjaðar á tveimur hliðum sem tryggir góða dagsbirtu og skemmtilegt útsýni út á höfnina. Um er að ræða fallega og vandaða umgjörð sem heldur vel utan um fjölbreytilega starfsemi og daglegt mannlíf.“ Blóð Stúdíó framleiddi og leikstýrði myndbandi um öll verkefnin sem tilnefnd eru í ár og birtast þau hér á Vísi næstu daga. Klippa: Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2021: Söluhús við Ægisgarð Um verkefnið: Timburhús staðsett á bryggju við gömlu höfninni í Reykjavík og hönnuð til að koma í stað þyrpingar niðurfallinna söluskúra með miðasölu fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Verkefnið er hluti af þéttbýlisátaki til að gera gömlu höfnina meira aðlaðandi fyrir almenning þar sem sífellt fleiri veitingastaðir, verslanir og önnur þjónusta hafa sest að á þessu svæði undanfarin ár. Innblástur fyrir þetta verkefni var gömul ljósmynd sem sýnir timburhús sem eru löngu horfin með gaflinn að framan við forn sund í nágrenni gömlu hafnarinnar. Timburhúsin eru tengd saman með rúmgóðum veröndum, með setusvæðum og geymslum fyrir búnað sem tengist ferðaþjónustunni. Tilviljunarkennt skipulag fyrrum söluskúra er skipt út fyrir agað skipulag endurtekinna mannvirkja, hönnunar og efnisvals . Smæð húsanna kallar á vandlega meðferð á hönnun á hverju smáatriði. Um hönnuðina Yrki var stofnað árið 1997 af þeim Ásdísi Helgu Ágústsdóttur og Sólveigu Berg. Stofan var stofnuð í framhaldi af 1. verðlaunum sem þær hlutu fyrir Lækningaminjasafnið við Nesstofu á Seltjarnarnesi. Í dag starfar hjá Yrki samstilltur hópur hæfileikaríkra hönnuða í arkitektúr, skipulagi og landslagsarkitektúr. Nafnið Yrki hefur dálítið margræða merkingu í íslensku máli; það skírskotar bæði til skáldskapar og ræktunar, jafnvel tilraunastarfsemi þar sem ólíkar erfðir eru tvinnaðar saman og eitthvað nýtt verður til. Þessi margræða merking er ágæt vísbending um heimspeki stofunnar: löngun og metnað til að sameina hið jarðbundna og ljóðræna í afstöðunni til hönnunar og sköpunar. Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Á afhendingunni verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2021. Næstu daga verður hulunni svipt af tilnefningum ársins en afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2021 fer fram þann 29. október í Grósku ásamt málþingi tengt verðlaunum. Nánari upplýsingar síðar en takið daginn frá. Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands , Listaháskóla Íslands , Landsvirkjun , Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins .
Hönnunarverðlaun Íslands Reykjavík Arkitektúr Tengdar fréttir Hjaltalín - ∞ tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2021 Ásýnd „Hjaltalín - ∞“ eftir grafíska hönnuðinn Sigurð Oddsson, myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2021. 6. október 2021 09:00 Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Fleiri fréttir Skemmtileg tískuslys og eftirminnileg jólaföt Stjörnum prýtt hönnunar húllumhæ í Húrra Fagnaði tvítugsafmælinu í Vivienne Westwood Opnuðu sjóðheitt hönnunarstúdíó með stæl Best klæddu Íslendingarnir 2024 Sænsk tískudrottning sögð kúga starfsfólk sitt Húrrandi stemning í opnun Húrra Rúbínrauðu skór Dóróteu seldust á 3,8 milljarða Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar Logi Pedro með hönnunarlínu: „Ég verð að gera þetta sjálfur“ Djörf á dreglinum Laxahattar komnir aftur í tísku hjá háhyrningum Steldu stílnum af Samfylkingar-Rögnu Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Flott klæddir feðgar Fagurfræði: Hvernig förðum við mismunandi húðtýpur? Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Sjá meira
Hjaltalín - ∞ tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2021 Ásýnd „Hjaltalín - ∞“ eftir grafíska hönnuðinn Sigurð Oddsson, myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2021. 6. október 2021 09:00