Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Tesla.

„Okkur þykir spennandi að gera vistvænar ferðir mögulegar allan hringinn, þannig geta bæði Íslendingar og ferðamenn nýtt tækifærið til að ferðast með skilvirkum og útblásturslausum hætti,“ segir í tilkynningunni frá Tesla.
Með Evrópu kynningu hreina raf-jepplingsins Model Y fyrr á þessu ári hefur Tesla haldið áfram að sjá mikla eftirspurn á Íslandi. Íslenskir viðskiptavinir vilja skipta yfir í hreina rafbíla. Model 3 og Model Y eru báðir á meðal fimm mest seldu bíla ársins á Íslandi hingað til, samkvæmt opinberum gögnum. Nýjar pantanir af öllum gerðum af Model 3 og Model Y Long Range eru enn á áætlun hvað varðar afhendingu fyrir árslok.

Þriðja kynslóð ofurhleðslustöðva
V3 ofurhleðslustöðvarnar geta náð allt að 250 kW hleðslu, sem þýðir enn styttri stopp til að hlaða. Það skilar sér vel þegar land er lagt undir fót á Tesla bifreið. Model 3 Long Range er fimm mínútur að auka drægnina um 120 km. á V3 ofurhleðslustöð. Meðal hleðslustopp verður væntanlega um 15 mínútur.
V3 ofurhleðslustöðvarnar fela í sér miklar tækniframfarir og evrópskar V3 stöðvar nota eingöngu CCS tengi. Allar gerðir af Model 3 og Model Y styðja CCS tengi. Eigendur Model S og Model X geta fengið millistykki til að nota CCS tengi við sína bíla. Slík millistykki hafa fylgt öllum Model S og Model X bílum síðan í maí 2019.