Tíska og hönnun

FÓLK framleiðir hönnun Gunnars Magnússonar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Dæmi um hönnun Gunnars
Dæmi um hönnun Gunnars Aðsent

FÓLK Reykjavík og Gunnar Magnússon, sem hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands á föstudag, hafa undirritað samning um endurútgáfu og einkarétt á útgáfu hönnunar Gunnars og kynningar og markaðssetningar á hönnunarverkum hans og arfleifð næstu árin.

FÓLK mun þróa vörur Gunnars til endurútgáfu í samstarfi við Gunnar og fjölskyldu með sjálfbærni og hringrás hráefna að leiðarljósi.  Gunnar Magnússon þekkja margir Íslendingar sem eitt af stóru nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu. 

„Hönnun Gunnars vakti mikla athygli á erlendri grundu og vann hann í samstarfi við nokkra af fremstu hönnuðum Dana eins og Borge Mogensen auk þess að ná góðum árangri í alþjóðlegum hönnunarsamkeppnum á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann snéri með fjölskylduna aftur til Íslands árið 1964 þar sem hann stofnaði eigin teiknistofu og vann í fjóra áratugi að fjölmörgum verkefnum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki, bæði hlutum og stærri verkefnum til dæmis fyrir Hótel Holt, Kennaraháskólann, Alþingi og banka,“ segir í tilkynningu frá FÓLK. 

„Það er til marks um gæði hönnunar Gunnars hvað hún stenst vel tímans tönn. Hún er skýrt framlag Íslendinga til Norrænnar hönnunarhefðar síðustu aldar sem nýtur enn í dag mikillar hylli á heimsvísu. Það er því mjög spennandi að fá tækfæri til að endurútgefa hana í samræmi við okkar áherslur um sjálfbærni og hringrás hráefna,“ segir Ragna Sara stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLKs. 

Hönnunarmerkið Fólk er nýsköpunarfyrirtæki stofnað árið 2017 til að ýta undir hönnun og framleiðslu sem styður sjálfbærni og hringrás hráefna auk þess að vera stökkpallur fyrir íslenska hönnuði á erlendri grundu. Vörur fyrirtækisins eru hannaðar eftir sérstökum skilyrðum þar sem meðal annars eru einungis notuð náttúruleg og endurunnin hráefni. Sýn FÓLKs er að auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum sjálfbærari lífsstíl.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.