Conte tekinn við Tottenham Sindri Sverrisson skrifar 2. nóvember 2021 12:08 Antonio Conte með Tottenham-treyjuna í dag. mynd/Tottenham Hotspur Antonio Conte var í hádeginu tilkynntur sem nýr knattspyrnustjóri enska félagsins Tottenham. Hann tekur við liðinu af Nuno Espírito Santo sem var rekinn.
Samingur Conte gildir fram til sumarsins 2023, með möguleika á framlengingu. Conte snýr aftur til Lundúna með ansi álitlega ferilskrá. Sem knattspyrnustjóri hefur hann með annars orðið Ítalíumeistari í þrígang með Juventus og svo með Inter í vor. Í millitíðinni gerði hann Chelsea að Englandsmeistara árið 2017 og enskum bikarmeistara árið 2018. Conte stýrði ítalska landsliðinu á árunum 2014-2016 og kom því í 8-liða úrslit á EM 2016. Ítalinn átti í viðræðum við Tottenham í sumar um að taka við liðinu af Jose Mourinho en á endanum réði félagið Nuno til starfa. Hann fékk þó aðeins að stýra liðinu í fjóra mánuði og skildi við það í 9. sæti með 15 stig eftir 10 umferðir. „Ég er afskaplega ánægður með að snúa aftur í þjálfun og að gera það með ensku úrvalsdeildarfélagi með metnað til að snúa aftur í fremstu röð,“ sagði Conte. „Tottenham Hotspur er með allar bestu nútímaaðstæður og einn besta leikvang í heimi. Ég get ekki beðið eftir því að hefja störf og miðla áfram til liðsins og stuðningsmanna þeirri ástríðu, hugarfari og ákveðni sem hafa alltaf einkennt mig, bæði sem leikmann og þjálfara,“ sagði Conte.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Enski boltinn Fleiri fréttir Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Sjá meira