Lífið

Seljaskóli og Hagaskóli áfram í úrslit Skrekks

Kjartan Kjartansson skrifar
Úr atriðinu „Fokk þöggun“ frá Hagaskóla sem komst áfram í úrslit Skrekks.
Úr atriðinu „Fokk þöggun“ frá Hagaskóla sem komst áfram í úrslit Skrekks. Anton Bjarni

Hagaskóli og Seljaskóli voru hlutskarpastir á öðru undanúrslitakvöldi Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík í kvöld. Tvö hundruð og tuttugu ungmenni frá átta grunnskólum tóku þátt í kvöld.

Auk Hagaskóla og Seljaskóla tóku Sæmundarskóli, Breiðholtsskóli, Vogaskóli, Háaleitisskóli, Dalsskóli og Foldaskóli þátt í undanúrslitakvöldinu á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu í kvöld.

Siguratriðin voru „Svefnleysi“ Seljaskóla og „Fokk þöggun“ frá Hagaskóla. Öll verkin eru frumsamin atriði. 

Úr atriðinu „Svefnleysi“ frá Seljaskóla.Anton Bjarni

Fellaskóli og Laugalækjarskóli fóru áfram í úrslit á fyrsta undanúrslitakvöldin sem fór fram í gærkvöldi. Langholtsskóli sigraði í keppninni í fyrra.

Atriði kvöldsins voru:

Sæmundarskóli - Ef allir væru eins

Breiðholtsskóli - Í lagi?

Vogaskóli – Sjálfsmynd

Hagaskóli - Fokk þöggun

Háteigsskóli - Af hverju?

Dalskóli – Daglegt brauð

Seljaskóli - Svefnleysi

Foldaskóli - Síðasta tréð


Tengdar fréttir

Fella­skóli og Lauga­lækjar­skóli komust í úr­slit Skrekks

Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sjö grunnskólar tóku þátt í kvöld og komust Fellaskóli með atriðið Hvað er að gerast sem fjallaði um Covid-19 og Laugalækjarskóli með atriðið Á bak við brosið sem fjallar líkamsvirðingu áfram í úrslit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.