Fótbolti

Beta getur endurtekið afrekið þrátt fyrir áfallið um síðustu helgi

Sindri Sverrisson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir náði risastórum áfanga þegar hún kom Kristianstad í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð og nú gæti hún endurtekið leikinn.
Elísabet Gunnarsdóttir náði risastórum áfanga þegar hún kom Kristianstad í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð og nú gæti hún endurtekið leikinn. Mynd/@_OBOSDamallsv

Landsliðskonurnar Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir geta kvatt Kristianstad sem „Meistaradeildarlið“ eftir morgundaginn. Til að svo megi verða má ekkert út af bregða.

Kristianstad, sem leikið hefur undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur frá árinu 2009, náði sínum besta árangri frá upphafi í fyrra þegar liðið endaði í 3. sæti. Það skilaði liðinu sínum fyrstu leikjum í Meistaradeild Evrópu í sögu félagsins.

Nú getur Kristianstad endurtekið leikinn en til þess þarf liðið að vinna Piteå í hádeginu á morgun, í kuldanum norðarlega í Svíþjóð. Þá fer fram lokaumferðin í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård hafa fyrir löngu tryggt sér meistaratitilinn og ljóst er að Häcken, lið Diljár Ýrar Zomers, endar í 2. sæti. Fjögur lið eiga hins vegar enn möguleika á að enda í 3. sæti.

Barátta fjögurra liða um sætið

Kristianstad er í 3. sætinu þrátt fyrir afar óvænt tap gegn föllnu botnliði Växjö, 1-0, í síðasta leik. Eskilstuna er einnig með 32 stig en með tveimur mörkum verri markatölu en Kristianstad, þökk sé 3-1 tapi Eskilstuna gegn Rosengård á mánudaginn.

Eskilstuna á erfiðan leik við Häcken á morgun. Ef að bæði Eskilstuna og Kristianstad tapa mun væntanlega sigurliðið í leik Örebro og Vittsjö, sem sitja í 5. og 6. sæti, ná 3. sætinu.

Að keppnistímabilinu loknu mun Sif flytja til Íslands og finna sér hér íslenskt félag til að spila fyrir. Björn Sigurbjörnsson, maður Sifjar, hefur verið aðstoðarþjálfari Kristianstad um árabil en er að taka við Selfossi.

Sveindís fer hins vegar til Þýskalands en hún hefur verið á láni hjá Kristianstad frá stórliðinu Wolfsburg á þessu fyrsta ári sínu í atvinnumennsku.

Elísabet hefur hins vegar skrifað undir samning um að þjálfa Kristianstad áfram á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×