Innlent

Níutíu greindust smitaðir af Covid í gær

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Óvíst er hve margir fóru í PCR próf í gær. 
Óvíst er hve margir fóru í PCR próf í gær.  Vísir/Vilhelm

Níutíu greindust smitaðir af Covid-19 í gær. Af þeim voru 37 í sóttkví eða 41 prósent. Þá greindust tveir smitaðir af veirunni á landamærunum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Ekki liggur fyrir hve mörg PCR próf voru tekin í gær. 

Í dag eru alls 1.109 í einangrun og  2.456 í sóttví. Um er að ræða bráðabirgðatölur og verða þær uppfærðar á morgun, mánudag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×