Segist hafa horft á starfsmann skólans snúa dóttur sína niður Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 8. nóvember 2021 19:34 Íris hefur kært málið til lögreglu sem segir það enn í rannsókn, tæpu ári frá því að það var kært. vísir/sindri Móðir níu ára stúlku, sem hefur kært starfsmann Gerðaskóla til lögreglu, segist hafa horft á hann snúa dóttur sína niður fyrir það eitt að klóra út í loftið í áttina að honum. Það sé viðtekin venja í skólanum að læsa börn með raskanir eða sem starfsfólkið ræður illa við inni í litlu gluggalausu herbergi.
Dóttir Írisar er með ADHD og var oft tekin úr tímum og færð í það sem skólinn kallar sérstakt „hvíldarherbergi". Móðir hennar taldi að þar væri um að ræða notalegan stað þar sem auðvelt væri að slaka á. Þegar hún var síðan kölluð inn af skólanum í desember í fyrra til að sækja dóttur sína, því henni leið sérstaklega illa þann daginn, blasti við henni önnur sjón. Hvíldarherbergið frekar eins og fangaklefi „Þegar ég labba á bak við skápinn þá sé ég aðstoðarskólastjóra halda hurðinni lokaðri. Og ég spyr hvar barnið mitt sé og þá segir hann hérna inni í þessu herbergi . Ég segi ertu til í að hleypa mér inn og fer inn í herbergið og fæ bara nett áfall,“ segir Íris. Kom nú í ljós að „hvíldarherbergið" svokallaða væri ekki annað en pínulítið herbergi, án loftræstingar með skærri lýsingu og bergmáli. aðsend Þar var hvergi hægt að setjast niður nema á einn grjónapúða sem lá á gólfinu og engir gluggar á herberginu. Sá sem sést á myndunum hér að ofan er nýr og var komið á hurðina eftir umkvartanir Írisar til skólans. Íris segir herbergið ekki ósvipað litlum fangaklefa. „Og henni er haldið lokaðri þar inni. Hún er tekin á höndum og fótum og hent inn í þetta herbergi í brjáluðu skapi þar sem er búið að brjóta á henni," segir Íris. Hún hafi sest hjá dóttur sinni inni í herberginu á meðan hún var að róa sig niður. Aðferðir nokkurra skóla við að loka börn með raskanir inn í herbergjum sem þessum eru til skoðunar hjá umboðsmanni alþingis og hafa vakið athygli síðustu vikur: Klóraði í áttina að starfsmanninum en snerti hann ekki „Þar er hún bara grátandi og öskrandi og segja hvað væri gert við hana og svoleiðis. En á meðan það er, þá kemur starfsmaður skólans inn í þetta litla rými og segir við barnið mitt að nú sé hún að ljúga að mér." Dóttir hennar hafi brugðist illa við þessu og öskrað að starfsmanninum að hún vilji fá að vera ein með mömmu sinni. Hann hafi þá neitað að fara. „Þá kemur hún svona ögrandi að honum og gerir svona eins og köttur; hvæsir og klórar út í loftið en kemur ekki við hann," segir Íris. „Þá tekur hann í hendurnar á henni, setur þær fyrir aftan bak og dregur barnið niður þannig að barnið er með andlitið í gólfinu." Íris hefur kært starfsmanninn til lögreglu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur staðfest við fréttastofu að mál sé í rannsókn þar sem starfsmaður skóla í umdæminu sé „grunaður um að hafa beitt barn ofbeldi". Hvorki hefur náðst í skólastjóra né aðstoðarskólastjóra Gerðaskóla í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Líður mun betur annars staðar Íris segir dóttur sína nú í meðferð hjá Bugl og að hún hafi nýlega verið greind með depurð og áfallastreituröskun. Hún er komin í annan skóla þar sem tekið er allt öðruvísi á hennar vanda og líður að eigin sögn mun betur þar. Þar séu börnin ekki beint þvingunum og aldrei lokuð inni í herbergi þegar þau komast í uppnám.
Suðurnesjabær Ofbeldi gegn börnum Grunnskólar Skóla - og menntamál Réttindi barna Mest lesið Þorbjörn kominn heim eftir átta mánaða fjarveru Innlent „Mun enginn kaupa annað en rafbíl árið 2028“ Innlent Þyrlusveitin kölluð til aðstoðar lögreglu í nótt Innlent Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna Erlent Minnkandi líkur á 20 stiga hita Veður „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Erlent Segja Musk hyggjast styrkja Trump um 45 milljónir dala á mánuði Erlent „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Pattstaða í Frakklandi Erlent Fleiri fréttir „Við erum bara að segja þeim að vinna vinnuna sína“ Tvö þyrluútköll á Suðurlandi í gær og í nótt „Mun enginn kaupa annað en rafbíl árið 2028“ Þorbjörn kominn heim eftir átta mánaða fjarveru Þyrlusveitin kölluð til aðstoðar lögreglu í nótt „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Ætlar að áfrýja til Landsréttar Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Betlari til leiðinda í miðbænum Síbrotamaður dæmdur og Siggi stormur svarar fyrir spána „Hættan fyrir vinnandi fólk er raunveruleg“ Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Bókanir undir væntingum en ekki hægt að tala um hrun Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax Íslendingur fannst látinn á Spáni Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld „Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Kourani, banatilræði við Trump og efnhagsmálin Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Tekjur mestar í Vestmannaeyjum og minnstar í Tjörneshreppi Of lítið fjármagn til viðhalds hafi kostað mannslíf Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Ungir menn sem veðja stjórnlaust hafi varann á Stúlkan er fundin Sjá meira