Innlent

Hanna Rún og og Aðalþing hlutu Íslensku menntaverðlaunin

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Verðlaunahafar kvöldsins.
Verðlaunahafar kvöldsins.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, veitti Íslensku menntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í kvöld.

Alls eru verðlaunin veitt í fjórum flokkum en eftirtaldir hlutu verðlaunin þetta árið:

Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlaut leikskólinn Aðalþing fyrir framsækið, skapandi skólastarf og lýðræðislega starfshætti.

Verðlaun sem framúrskarandi kennari hlaut Hanna Rún Eiríksdóttir, kennari við Klettaskóla, fyrir framúrskarandi kennslu nemenda með fötlun, meðal annars fyrir að þróa nýjar leiðir til tjáskipta.

Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni hlutu Nanna Kr. Christiansen og skóla- og frístundasvið Reykjavíkur fyrir þróunarverkefnið Leiðsagnarnám. Verkefnið snýr að eflingu námsmenningar sem stuðlar að aukinni ábyrgð nemenda á eigin námi.

Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna hlutu að þessu sinni Vilhjálmur Magnússon og Vöruhúsið – miðstöð skapandi greina á Hornafirði, sem er einstakur vettvangur til kennslu í nýsköpun og list- og verkgreinum á öllum skólastigum. Þar er boðið upp á formlegt og óformlegt nám í handverki, hönnun og hugmyndavinnu þar sem lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á og hefja til vegs í samfélaginu það metnaðarfulla og vandaða starf sem unnið er með börnum og ungmennum á öllum skólastigum, að því er segir í tilkynningu frá embætti forseta Íslands.

Auk forseta Íslands veittu verðlaunin þau Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Sigurður Ingi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra og Gerður Kristný, skáld og formaður valnefndar Íslensku menntaverðlaunanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×