Taylor Swift heldur áfram að toppa sig Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. nóvember 2021 07:33 Beth Garrabrant tók myndirnar af Taylor Swift fyrir endurútgáfuna af RED. Rauði liturinn er auðvitað áberandi. Skjáskot/Instagram Taylor Swift heldur sífellt áfram að gleðja aðdáendur sína með nýjum gullmolum. Í nótt gaf hún aftur út plötu sína Red, sem kom fyrst út árið 2012. Platan heitir núna RED (Taylor’s Version) og er hún enn betri en upprunalega útgáfan.
Á plötunni má meðal annars finna tíu mínútna upptöku af laginu All To Well. Þetta er hrá upprunaleg útgáfa sem Taylor tók fyrst upp áður en hún þurfti að stytta lagið og taka það upp aftur í hljóðveri og gera það að útvarpssmelli. Þessi upprunalega útgáfa var því hennar eign allan tímann og ekki útgáfunnar. Þessi týnda gamla útgáfa er mun ítarlegri og er ýmislegt sem kemur fram í textanum sem hún hefur ekki talað um áður. Til dæmis að gaurinn hafði nú þegar hitt föður hennar á meðan á ástarævintýrinu stóð og að hann sveik hana og skrópaði í 21 árs afmælisveisluna hennar. Drama eins og það gerist best. Hún setti internetið næstum því á hliðina með þessu öllu saman og hafa aðdáendur hennar um allan heim verið að hlusta á þetta allt saman í nótt. Textamyndband við þessa tíu mínútna útgáfu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Í viðtali í Jimmy Kimmel í gær talaði Taylor meðal annars um tíu mínútna lagið. Þar sagði hún að þessi tíu mínútna útgáfa hafi næstum því ekki náðst á upptöku. Eftir að hún söng textann sinn í gegn kom upp spurningin: „Tókstu þetta nokkuð upp?“ Sem betur fer var svarið já og nú fá aðdáendur að heyra hennar útgáfu. Á miðnætti í kvöld kemur svo út á Youtube stuttmyndin All to well, sem Taylor skrifaði sjálf og leikstýrði. View this post on Instagram A post shared by Taylor Swift (@taylorswift) Fyrir þá sem ekki vita af hverju Taylor Swift er að taka plöturnar sínar upp aftur, má lesa allt um höfundarréttarmálið hér og hér á Vísi. Taylor byrjaði á að gefa aftur út Fearless en nú var komið að RED. Fyrri útgáfa plötunnar RED innihélt sextán lög en í þessari útgáfu setti Taylor öll þrjátíu lögin sem hún vildi upprunalega hafa á plötunni. Röddin hennar hefur sjaldan hljómað betur en þrátt fyrir að áratugur sé liðinn frá ástarsorginni sem var innblásturinn að plötunni, á hún í engum erfiðleikum með að kafa aftur í þessar tilfinningar. Það er auðvitað áhætta að endurútgefa klassík, en með því að tæta hana í sundur og bæta við aukalögum og lengri útgáfum þá tekst henni það fáránlega vel svona miðað við fyrstu hlustun. View this post on Instagram A post shared by Taylor Swift (@taylorswift) Vissulega telja flestir að eldri maðurinn sem lögin fjalla um sé Jake Gyllenhal, en það skiptir í rauninni engu máli, það er aukaatriði. Aðdáendur söngkonunnar þurfa ekki að vita um hvern hún er að tala til þess að tengja við fallegu textana, um tárin og vonbrigðin. Það eru ekki allir sem kæmust upp með að gefa út tíu mínútna og þrettán sekúndna langt lag, en það er eitthvað sem segir manni að aðdáendur Taylor Swift muni koma þessu lagi á topplistana og í útvarpsspilun í fullri lengd. Hægt er að hlusta á plötuna RED (Taylor’s Version) á Spotify en hún er í heildina tvær klukkustundir og tíu mínútna löng.
Tónlist Bandaríkin Höfundarréttur Tengdar fréttir Konur áttu bresku tónlistarverðlaunin Bresku tónlistarverðlaunin voru afhend í gærkvöldi í O2-höllinni í London. Dua Lipa fór heim með tvenn verðlaun og alls unnu konur átta verðlaun í gærkvöldi, átta af ellefu verðlaunum. 12. maí 2021 12:31 Beyoncé og Taylor Swift skráðu sig á spjöld Grammy-sögunnar Bandarísku tónlistarkonurnar Beyoncé og Taylor Swift rituðu nöfn sín á spjöld sögunnar á Grammy-verðlaunahátíðinni sem fram fór í gær. 15. mars 2021 07:16 Banna Taylor Swift að syngja eigin lög á verðlaunahátíð Bandaríska söngkonan segir að atriði hennar á tónlistarhátíðinni American Music Awards (AMA) sé í óvissu þar sem henni hefur verið meinað að flytja sín eigin lög. 15. nóvember 2019 08:16 Mest lesið Dró Antonio grunlausan með sér í Gamla bíó Lífið Svanhildur selur 500 fermetra höll í Akrahverfinu Lífið Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Lífið Fundu ástina á ný eftir skilnað Lífið Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Lífið Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar Lífið Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Lífið samstarf Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Lífið Sóldís Vala er Ungfrú Ísland Lífið Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Menning Fleiri fréttir „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Frumsýning á Vísi: „Þetta er alveg ný hlið á mér“ Börn og sjálfstæðismenn velkomin í fylgd með forráðamönnum Ghostigital þruma út nýju lagi eftir níu ár Frumsýning á Vísi: Nýdönsk á slóðum Peter Gabriel og fleiri goðsagna „Ísland er í algjöru uppáhaldi hjá okkur“ FM Belfast fékk blessun Greifanna fyrir síðsumarsmelli Lalli töframaður sér börnunum fyrir brekkusöng „Næst á svið er Mammaðín!“ Segir lúsmýið ekki biðja um of mikið Hass, rokk og hóstasaft Nýtur lífsins áhyggjulaus í áhrifavaldaferð í Króatíu Björk með besta atriði í sögu Ólympíuleikanna Fyrsta lagið sem Nýdönsk gefur út í þrjú ár Ógleymanleg gleðivíma að koma út Four Tops söngvarinn Abdul „Duke“ Fakir látinn Óvænt að heyra að fólkið á LungA hafi alist upp við Hjaltalín Iceguys snúa aftur í sturluðu tónlistarmyndbandi Myndaveisla: Almennilegt rigningardjamm á Kótelettunni Iceguys dansandi í handjárnum Retro Stefson koma aftur saman Portú-galin stemning hjá Villa Netó Herbert og Patrik leika við hvern sinn fingur í nýju myndbandi Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Lætur langþráðan draum rætast og gefur út óð til grínsins Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Sjá meira
Konur áttu bresku tónlistarverðlaunin Bresku tónlistarverðlaunin voru afhend í gærkvöldi í O2-höllinni í London. Dua Lipa fór heim með tvenn verðlaun og alls unnu konur átta verðlaun í gærkvöldi, átta af ellefu verðlaunum. 12. maí 2021 12:31
Beyoncé og Taylor Swift skráðu sig á spjöld Grammy-sögunnar Bandarísku tónlistarkonurnar Beyoncé og Taylor Swift rituðu nöfn sín á spjöld sögunnar á Grammy-verðlaunahátíðinni sem fram fór í gær. 15. mars 2021 07:16
Banna Taylor Swift að syngja eigin lög á verðlaunahátíð Bandaríska söngkonan segir að atriði hennar á tónlistarhátíðinni American Music Awards (AMA) sé í óvissu þar sem henni hefur verið meinað að flytja sín eigin lög. 15. nóvember 2019 08:16