Innlent

Reykræstu í húsi Nings á Suðurlandsbraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Suðurlandsbraut 6 í dag.
Frá Suðurlandsbraut 6 í dag. Vísir/Kolbeinn Tumi

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að Suðurlandsbraut 6 í Reykjavík upp úr klukkan þrjú í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var um að ræða bilun í loftræstikerfi sem skilaði sér í reyk sem barst í hluta hússins.

Fólk yfirgaf bygginguna á meðan slökkviliðið sinnti störfum á vettvangi.

Reykræstingu mun vera lokið eða svo gott sem.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×