Innlent

Andlát vegna Covid-19

Atli Ísleifsson skrifar
Dauðföll sjúklinga sem greinst hafa með Covid-19 eru nú 35 frá upphafi faraldursins.
Dauðföll sjúklinga sem greinst hafa með Covid-19 eru nú 35 frá upphafi faraldursins.

Karlmaður á áttræðisaldri, sem greinst hafði með Covid-19, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi fyrr í vikunni.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði maðurinn greinst með Covid-19 fyrir nokkrum mánuðum og lést fyrr í vikunni. Hann hafði áður legið inni á Landspítala vegna veikindanna.

Á vefnum Covid.is segir af þeim sem greinst hafa með Covid-19 hér á landi eru nú 35 látin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×