Flóðhestarnir Imani, fjórtán ára, og Hermien, 41 árs, mega nú dúsa í einangrun þar sem þeir eru með Covid-19. Þeir mega þó vel við una þar sem þeir eru einkennalitlir og einungis með smá kvef.
„Eftir því sem ég best veit er þetta fyrsta smitið hjá þessarri dýrategund. Veiran hefur aðallega greinst meðal stórra apa og katta hingað til,“ hefur The Guardian eftir Francis Vercammen, dýralækni dýragarðsins.
Talið er að kórónuveiran sem nú herjar á heimsbyggðina hafi borist frá dýrum til manna í upphafi og nú virðist sem við mennirnir séum farnir að smita dýr í auknum mæli.
Gæludýr á borð við hunda, ketti og frettur hafa smitast af eigendum sínum. Þá hafa stór kattardýr, otrar, prímatar, hýenur og nú flóðhestar smitast af veirunni.
Þá gleymast seint fréttir af smitum meðal minkasamfélagsins í Danmörku, með tilheyrandi fjártjóni.