Lífið

Ísland kom fyrir í furðulegu atriði Billie Eilish fyrir SNL

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Billie Elish lék söngkonu frá Reykjavík í SNL.
Billie Elish lék söngkonu frá Reykjavík í SNL. Skjáskot

Saturday Night Live hefur birt á Twitter atriði með einstakri listakonu frá Íslandi.

Reykvíska söngkonan Deb, þekkt sem „The toast of Iceland,“ var klædd í hvítan ísbjarnarkjól. Atriðið er einstaklega sérstakt en vegna tímaskorts var það ekki sýnt í þættinum á laugardagskvöld. Með hlutverk Deb fór engin önnur en söngkonan Billie Eilish. 

Billie Eilish kom líka fram sem hún sjálf í þættinum og söng lagið Male Fantasy. Söngkonan frumsýndi þar nýjan háralit og er orðin dökkhærð. Fallega flutninginn hennar á laginu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.