Sport

Brutu ó­­­skrifaða reglu NFL-deildarinnar og var í kjöl­farið pakkað saman

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Las Vegas Raiders fengu að kynnast því hvar Davíð keypti ölið í gær.
Leikmenn Las Vegas Raiders fengu að kynnast því hvar Davíð keypti ölið í gær. David Eulitt/Getty Images

Kansas City Chiefs kjöldró Las Vegas Raiders í NFL-deildinni í gærkvöld. Lokatölur á Arrowead-vellinum í Kansas 48-9 heimamönnum í vil sem hafa verið á góðu skriði undanfarnar vikur.

Höfðingjarnir frá Kansas urðu meistarar 2020 og fóru alla leið í úrslit á síðustu leiktíð þar sem liðið beið lægri hlut. Það tók liðið smá tíma til að finna taktinn í upphafi yfirstandandi leiktíðar en undanfarið hafa Patrick Mahomes og félagar verið hreint út sagt frábærir.

Fyrir leik gærdagsins höfðu meistararnir frá 2020 unnið átta leiki og tapað fjórum á meðan Raiders hafði unnið sex og tapað jafn mörgum. Það var því ef til vil ekki sniðugt að brjóta óskrifaða reglur NFL-deildarinnar í upphafi leiks.

Áður en leikur hófst ákváðu leikmenn Raiders að spjalla saman á miðjum Arrowhead-vellinum, á þeim stað þar sem merki Chiefs er. Ef það var ekki nóg þá ákváðu sumir leikmenn liðsins að traðka á merki heimaliðsins. 

Þetta sat vægast sagt illa í leikmönnum Chiefs.

„Þú vilt ekki að fólk komi inn á heimavöllinn þinn og vanvirði það sem þú hefur byggt,“ sagði leikstjórnandi Höfðingjanna og tengdasonur Mosfellsbæjar, Patrick Mahomes, eftir leik.

Þó Raiders hafi ekki brotið neinar af reglum NFL-deildarinnar þá er það á allra vitorði að svona gera menn einfaldlega ekki.

„Ég hefði líka verið ósáttur ef ég hefði verið í þeirra sporum. Þeir sýndu okkur heldur betur hversu reiðir þeir voru og við réðum einfaldlega ekki við það. Við gerðum þetta sem lið og gáfum þeim eflaust hvatningu sem við hefðum betur sleppt,“ sagði KJ Wright, leikmaður Raiders, eftir leik.

Eftir 20 mínútna leik var staðan orðin 28-0 Chiefs í vil. Ekki skánaði það fyrir Raiders eftir það, staðan 35-3 í hálfleik og lokatölur 48-9. Leikmenn Raiders hugsa sig nú eflaust tvisvar um áður en þeir ákveða að ögra mótherjum fyrir leik.

NFL er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NFL er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Beinar útsendingar frá öllum leikjum eru á NFL Game Pass sem hægt er að kaupa sem á 2.990 krónur á mánuði fyrir núverandi áskrifendur.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×