Englandsmeistararnir léku sér að Leeds | Aston Villa hafði betur gegn gamla stjóranum

Jack Grealish skoraði eitt af sjö mörkum City í kvöld.
Jack Grealish skoraði eitt af sjö mörkum City í kvöld. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City unnu sinn sjöunda deildarleik í röð með 7-0 sigri gegn Leeds er liðin mættust á Ethiad leikvanginum í Manchester í kvöld.

Phil Foden kom City yfir strax á áttundu mínútu og fimm mínútum seinna var staðan orðin 2-0 eftir að landi hans, Jack Grealish, kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Riyad Mahrez.

Kevin De Bruyne bætti svo þriðja marki heimamanna við eftir rúmlega hálftíma leik og staðan því 3-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Riyad Mahrez kom City svo í 4-0 á 49. mínútu, áður en Phil Foden hélt að hann hefði skorað fimmta mark heimamanna á 61. mínútu. Foden var hins vegar dæmdur rangstæður, en það ko ekki að sök því Kevin De Bruyne kom heimamönnum í 5-0 strax í næstu sókn.

Þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka átti Fernandinho fyrirgjöf sem Aymeric Laporte skallaði að marki. Illan Meslier varði í marki Leeds, en sló boltann fyrir fætur John Stones sem skaut að marki, en aftur varði Meslier. Boltinn féll þó aftur fyrir John Stones sem nýtti færið í þetta skipti og staðan orðin 6-0.

Nathan Ake gulltryggði svo 7-0 sigur Manchester City þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka þegar hann skallaði hornspyrnu Phil Foden í netið.

Manchester City er nú með fjögurra stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er með 41 stig eftir 17 leiki, en Liverpool sem situr í öðru sæti á þó leik til góða.

Leeds situr hins vegar í 16. sæti með jafn mörg stig og gæti farið að nálgast fallsvæðið ef jákvæð úrslit fara ekki að detta inn.

Þá vann Aston Villa góðan 0-2 útisigur gegn botnliði Norwich í hinum leik kvöldsins. Dean Smith, þjálfari Norwich var þarna að mæta sínu gamla félagi og hefði ef til vill viljað ná í betri úrslit.

Jacob Ramsey og Ollie Watkins sáu um markaskorunina fyrir Aston Villa sem situr nú í níunda sæti deildarinnar með 22 stig, en Norwich er sem fyrr segir á botninum með tíu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira