Bíó og sjónvarp

Verbúðin tilnefnd til handritaverðlauna Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Nokkrir aðstandenda og leikara Verbúðarinnar í Lille.
Nokkrir aðstandenda og leikara Verbúðarinnar í Lille. Aðsend

Verbúðin er einn fimm þáttaraða sem tilnefnd er til handritaverðlauna Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins 2022. Nordisk Film & TV Fond verðlaunar árlega það besta í handritagerð fyrir dramaþáttaraðir. 

Þættirnir Verbúðin eru kynntir erlendis sem Blackport. Leikstjórar þáttanna eru Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og María Reyndal. Verbúðina framleiddi Vesturport, þau Nana Alfredsdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og Nína Dögg Filippusdóttir.

Þættirnir fjalla um vini sem búa vestur á fjörðum og fara í sjávarútvegsbransann árið 1983 þegar kvótakerfið er að verða til. Björn sagði sig frá Netflix-þáttunum The Witcher vegna Verbúðarinnar. Þættirnir hafa hlotið mikið lof og hafa meðal annars fengið verðlaun í Frakklandi og á Spáni.

Björn Hlynur og Gísli Örn í hlutverkum sínum.

Hinar þáttaraðirnar sem tilnefndar eru til verðlaunanna eru Jordbrukerne frá Noregi, Vi i villa frá Svíþjóð, Transport frá Finnlandi og Det største frá Danmörku. 

Hér fyrir neðan má sjá stikluna fyrir þættina Verbúðin. 


Tengdar fréttir

Ver­búð verð­launuð á Spáni

Íslenska þáttaröðin Verbúð, hlaut á dögunum dómnefndarverðlaunin á hátíðinni Serielizados Fest á Spáni. Hátt í 40 þættir og heimildarmyndir voru sýnd á hátíðinni.

Sagði sig frá Witcher vegna Ver­búðarinnar

Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson sagði sig frá Netflix-þáttunum The Witcher vegna framleiðslu á nýjum íslenskum þáttum, Verbúðinni. Björn Hlynur sló í gegn í hlutverki Eist í fyrstu seríu þáttanna en til stóð að hann léti sjá sig í annarri seríunni en ekkert verður úr því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.