Allir tíu þingmenn Suðurkjördæmis fengu boð á fundinn en Ásmundur þáði einn boðið. Í fundarboðinu segir meðal annars að áróðursmyndband hafi farið ljósum logum um ntheima og hafi myndbandið verið kallað „heimildarmynd“ í fjölmiðlum. Blóðbændur séu ekki par sáttir við að vera „útrhópaðir dýraníðingar út um alla heimsbyggð“.
Því hafi verið ákveðið að kalla til fundarins fyrir alla blóðbændur á Suðurlandi og ræða stöðu bændanna og næstu skref, hvernig „best sé að snúa vörn í sókn“.
Eftir að umrætt myndband var birt í lok nóvembermánaðar ákvað Matvælastofnun að hefja rannsókn á málinu. Þá hefur meðferðin á hryssunum, sem sáust í myndbandinu, verið harðlega gagnrýnd þar á meðal af Kristjáni Þór Júlíussyni, þáverandi landbúnaðarráðherra.
Dýralæknafélagið og Alþjóðasamtök íslenska hestsins hafa sömuleiðis fordæmt meðferðina og Svandís Svavarsdóttir, nýr landbúnaðarráðherra, skipað starfshóp til að fjalla um blóðmerahald. Líftæknifyrirtækið Ísteka hefur þá rift samningum við bændur sem sýndir voru fara illa með hross við blóðtöku í myndskeiðinu.
Ásmundur Friðriksson var eins og áður segir viðstæddur fundinum sem fór fram í Njálsbúð í Vestur Landeyjum í gærkvöldi. Henn segir blóðbændur og þeirra fólk slegna yfir umfjölluninni sem þeir hafi fengið síðustu vikur.
„Bændur sem voru á fundinum hafa sumir hverjir haldið blóðmerar í 40 ár og sinnt því með allri fjölskyldunni. Aldrei hafa verið gerðar athugasemdir og ekki fleiri frávik gerst við þá starfsemi en almennt gerist þegar horft er yfir búskapinn og meðferð dýra,“ skrifar Ásmundur í Facebook-færslu sem hann birti í dag.
„Fundurinn var yfirvegaður og bændur ræddu sín mál af skynsemi og þekkingu. Undir niðri ríkir sorg í samfélagi bænda. Fram undan er mikilvæg umræða um greinina og rétt að draga fram allar upplýsingar og næstu skref verði tekin þegar öldur lægja og tilfinningahitinn lækkar,“ skrifar Ásmundur.
Margir muna kannski að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur lagt fram frumvarp fyrir Alþingi um velferð dýra sem miðar að því að banna blóðmerahald hér á landi. Frumvarpið hefur verið sent til atvinnuveganefndar til umræðu. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, samflokkskona Ingu og þingmaður Suðurkjördæmis, var ekki viðstödd fundinum.
„Það var mjög upplýsandi fyrir mig sem þingmann kjördæmisins að mæta á þennan fjölmenna fund og heyra í tæplega 80 bændum um málefni sem hvíla þungt á öllum,“ skrifar Ásmundur í lok færslunnar.