Innlent

Hvetur fólk til að fækka jóla­gjöfunum

Eiður Þór Árnason skrifar
Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastýra hjá Landvernd, segir mikilvægt að muna að það sé í lagi að gera hlutina öðruvísi.
Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastýra hjá Landvernd, segir mikilvægt að muna að það sé í lagi að gera hlutina öðruvísi. Unsplash/Olesia Buyar/Aðsend

Sífellt fleirum er umhugað um kolefnisspor jólahátíðarinnar og getur reynst erfitt að halda í hófsemisstefnu þegar gjafakvíðinn fer að minna á sig. Finnst mörgum nógu erfitt að velja gjafir við hæfi fyrir vini og ættingja áður en loftslagsáhyggjurnar eru einnig teknar með inn í reikninginn.

Loftslagshópur Landverndar sá sér þar leik á borði og ákvað að svara kallinu með því að útbúa fjölbreyttan og umfangsmikinn lista yfir loftslagsvænar jólagjafahugmyndir. Má þar finna allt frá súrdeigsmóður til gjafakorta og heimagerðra snyrtivara.

„Við söfnuðum hugmyndum frá Loftslagshópnum sem samanstendur af fólki sem vill gera gagn í loftslagsmálum og hafa áhrif. Þau komu með margar frábærar hugmyndir sem var svo raðað í þemun matur, handverk og listir, samvera, upplifun, skref í átt að sjálfbærni, áskrift, þjónusta, heimagerð snyrtivara, og loks framlög til mannúðarmála og umhverfismála,“ segir Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastýra hjá Landvernd, en hún ritstýrði jafnframt jólagjafalistanum sem var birtur í fyrra.

Hún bætir við að þetta árið hafi náttúruverndarsamtökin svo útbúið svokallað neyslujólatré sem sé ætlað að minna fólk á að einfalda jólagjafainnkaupin og endurskoða magnið. Sömu grunnhugmyndir um að búa til, afþakka og kaupa notað megi svo yfirfæra á aðra þætti jólahátíðarinnar.

Vigdís kom einnig að því að útbúa neyslujólatréð og segist hafa fengið mjög góð viðbrögð við framtakinu. Við gerð jólatrésins horfði hún meðal annars til þeirra atriða sem hún vill sjálf reyna að hafa í hávegum yfir hátíðirnar.

„Til dæmið þá þarf ég að minna mig á að ég má fækka gjöfunum, ég má gera hlutina öðruvísi og það er í lagi að gera lista yfir það sem mig raunverulega langar í án þess að vera vanþakklát.“

Flestir að hugsa það sama

Vigdís tók nýverið saman hversu margar jólagjafir hún hefur gefið seinustu ár og segir að fjöldinn hafi komið sér verulega á óvart. Hún hvetur fólk til fara yfir listann sinn og jafnvel endurskoða fjölda jólagjafa þetta árið í samráði við viðtakendur.

Vigdís segir að þrátt fyrir að fólki geti fundist erfitt að leggja til breytingar á hefðum og venjum sem hafa skapað sér sess um jólahátíðina sé mikilvægt að muna að flestir vilji reyna að draga úr neyslu sinni yfir jólin með einhverjum hætti.

„Þó mörgum langi til dæmis til að fækka gjöfunum þá finnst þeim það kannski erfiðara en að segja það. Þú bara þarft að eiga þetta samtal og kannski eru fleiri í kringum þig að hugsa það nákvæmlega sama. Það eru allavega skilaboðin sem ég hef fengið frá fólki,“ segir Vigdís.

Barnapössun kjörin gjöf fyrir þreytta foreldra

Aðspurð um það hvaða hugmyndir á jólagjafalistanum séu í uppáhaldi segir Vigdís að það sé til dæmis kjörið að bjóða fólki í óvissuferð eða gott matarboð með ákveðnu landaþema. Þá hafi hún heyrt dæmi þess að fólk hafi gefið foreldrum langþráða næturpössun í jólagjöf.

Vigdís segir einnig geta verið skemmtilegt gefa svokallað skref í átt að sjálfbærni sem er þá gjöf sem hjálpar viðtakandanum að draga úr vistspori sínu. Þetta geti til að mynda verið hlutir eins og gjafabréf í fataverslanir Rauða krossins, strætókort eða jarðgerðartunna. Að lokum sé alltaf vinsælt að gefa einhverja upplifun, á borð við miða í leikhús, kvikmyndahús eða á tónleika.

„Þetta þarf ekki endilega að vera flókið, heldur þarf bara að kýla á þetta,“ segir Vigdís að lokum.

Hluti af jólagjafalista Loftslagshóps Landverndar

  • uppskrift og allt sem þarf í hana
  • heimagert konfekt
  • teikning eða málverk
  • skúlptúr
  • leikþáttur eða uppistand
  • rafrænt námskeið
  • gjafakort út að borða saman
  • dekurferð í náttúruna, með teppi og kakó
  • leikhús
  • bíó
  • tónleikar
  • gjafakort Ferðafélags Íslands
  • strætókort
  • góðar bækur
  • gjafabréf í fataverslanir Rauða krossins
  • afleggjari af blómi sem þú átt
  • barnapössun
  • nudd
  • fjallaleiðsögn
  • áskrift að blaði
  • heimagerða baðbombu
  • heimagert sápustykki
  • heimagerðan kinnalit eða sólarpúður

Jólagjafalistann má finna í heild sinni á vef Landverndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×