Innlent

186 greindust smitaðir af veirunni í gær

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
212 greindust smitaðir af veirunni í gær. 
212 greindust smitaðir af veirunni í gær.  Vísir/Vilhelm

Í gær greindust 186 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Alls voru 72 af þeim í sóttkví. 

Þetta segir í tilkynningu frá Almannavörnum en um er að ræða bráðabirgðatölur. 26 greindust smitaðir á landamærunum. 

Í dag eru 1.657 í einangrun og 2.400 í sóttkví. 

Frekari upplýsingar munu ekki berast fyrr en á mánudag þegar heimasíða covid.is verður uppfærð.


Tengdar fréttir

Nokkrir þingmenn greinast með Covid-19 og aðrir bíða eftir niðurstöðum

Minnst þrír þingmenn hafa greinst smitaðir af Covid-19 og er verið að skima þingmenn og starfsmenn þingsins. Birgir Ármannsson, forseti þingsins, segir að verið sé að afla upplýsinga um fjölda staðfestra smita og ná utan um hvaða áhrif smitin muni hafa á störf þingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×