Innlent

Slökkvi­liðið kannar bruna­lykt á Grandanum

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur varann á.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur varann á. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðið sendi tvo slökkvibíla út á Granda í Vesturbæ Reykjavíkur rétt í þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fengu þeir tilkynningu um að brunalykt væri að finna á Grandanum.

Slökkviliðið hyggst því kanna málið en gat ekki veitt fréttastofu frekari upplýsingar að svo stöddu. Útkallið er þó ekki talið vera alvarlegt.

Bilun reyndist hafa verið í brunakerfi og var engin hætta á ferðum, segir slökkviliðið nú í samtali við fréttastofu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×