Lífið

Brúðkaup ársins: Pörin sem giftu sig í miðjum heimsfaraldri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Við gerum upp árið 2021 á Vísi.
Við gerum upp árið 2021 á Vísi. Samsett

Það var óvenjulítið um stór brúðkaup á árinu vegna heimsfaraldursins. Það voru þó nokkur heppin pör sem náðu að láta pússa sig saman.

Á hverju ári greinum við  á Vísi frá brúðkaupum og hér fyrir neðan má sjá yfirferð yfir þekkta Íslendinga sem gengu í hnappelduna á árinu 2021.

Róbert Wessman og Ksenia Shakhmanova giftu sig í garðinum við heimili sitt í Frakklandi í sumar.  Hjónin settu upp hringana við blómaaltari í garðinum og gengu svo út spegladregil að athöfn lokinni.

Enrique Iglesias söng fyrir veislugesti og tók meðal annars lagið Hero sem er lag þeirra Róberts og Kseniu. Jökull Júlíusson í Kaleo tók einnig lagið. Róbert var í fötum frá Dolce & Gabbana og kjóllinn hennar Kseniu er fra Zuhair Murad. Blóma­hönnuður­inn Jean Char­les Vaneck hannaði blómin.

Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé og Magnús Orri Schram giftu sig í ágúst umkringd nánustu fjölskyldu. Brúðkaupið fór fram í lítilli sveitakirkju. Þórey og Magnús opinberuðu samband sitt haustið 2019 en eru nú gengin í hjónaband.

Þórey er stofnandi og eigandi Empower en hefur meðal annars starfað sem ráðgjafi hjá Capacent og var á sínum tíma aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur dómsmálaráðherra. Þórey er mikil útivistarkona og hefur ásamt hópnum Snjódrífurnar safnað fyrir samtökin Líf og Kraftur með göngum eins og Lífskraftur og Kvennadalshnjúkur.

Magnús er framkvæmdastjóri Rauðukamba en var áður fjölmiðlamaður og einnig formaður þingflokks Samfylkingarinnar árið 2012 en hann sat á þingi á árunum 2009-2013.

At­hafn­a­kon­an Frið­rik­a Hjör­dís Geirs­dótt­ir, betur þekkt sem Rikka, og Kári Guðjón Hallgrímsson, stjórnandi á skuldabréfasviði á fjárfestingabankans JP Morgan í London, giftu sig 2. október. Þau héldu svo veislu hér á landi á dögunum fyrir sína nánustu. 

Rikka og Kári fóru að stinga saman nefjum árið 2019. Bæði eiga syni úr fyrra sambandi og tóku strákarnir fimm allir þátt í stóra deginum og fjölskylduhundarnir fengu að vera með líka.

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason og kokkurinn Helga Gabríela Sigurðar gengu í það heilaga í Háteigskirkju í janúar á þessu ári.

Athöfnin var lítil og falleg en Þorkell Máni Pétursson var svaramaður Frosta í athöfninni.

Eftir athöfnina var lítll veisla í Vinnustofu Kjarvals þar sem íslenskar stórstjörnur litu við og fluttu falleg lög. Þar á meðal þau Bríet, Högni Egilsson, Friðrik Dór Jónsson, Bubbi Morthens og fleiri.

Marta María Jónasdóttir, oftast kennd við Smartland, og Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, giftu sig við hátíðlega athöfn í Bessastaðakirkju í ágúst. 

Marta María greindi frá giftingunni á Instagramsíðu sinni. „Við féllum fyrir hvort öðru og ákváðum á fyrsta deiti að verða hjón.“ 

Hún hefur nú tekið upp eftirnafn eiginmanns síns. Á samfélagsmiðlum titlar hún sig nú Mörtu Maríu Winkel en er skráð í Þjóðskrá sem Marta María Winkel Jónasdóttir.

Gunnar Bragi Sveins­son al­þingis­maður og Sunna Gunnars Marteins­dóttir, starfs­maður breska sendi­ráðsins, giftu sig í júlí.

Greint var frá trú­lofun Gunnars og Sunnu í maí síðast­liðnum. Þau hafa greini­lega ekki séð á­stæðu til að bíða lengi með giftinguna og létu til skarar skríða við há­tíð­lega at­höfn í Dómkirkjunni í Reykjavík í sumar með til­heyrandi veislu­höldum.

Frosti Gnarr og Erla Hlín Hilmarsdóttir gengu í það heilaga 21. júní á afmælisdegi brúðarinnar. Þau höfðu miklu að fagna en hún var einnig að útskrifast.

Jón Gnarr faðir Frosta gaf þau saman í einstakri athöfn. Að henni lokinni blés hann yfir þau sápukúlur. Brúðurin og afmælisbarnið klæddist gullfallegum rauðum síðkjól, í stíl við fallegan hring með eldrauðum steini. Frosti var klassískur í svörtu og hvítu.

Frosti er hönnuður og listamaður en Erla er förðunarfræðingur og eigandi Ekta, netverslunar sem sérhæfir sig í merkjavöru. Þau eiga saman tvo syni. Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson söng í brúðkaupsveislunni og sungu brúðhjón og gestir hátt með laginu Þegar þú komst inn í líf mitt.

Helena Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir knattspyrnukempur gengu líka í heilagt hjónaband í ágúst. Það fór vel á því að þær létu pússa sig saman á þjóðarleikvanginum sjálfum, Laugardalsvelli.

Helena og Guðlaug voru burðarstólpar í sigursælu liði KR á sínum tíma og spiluðu saman með íslenska landsliðinu. Þær hafa líka unnið saman við þjálfun utan vallar.

Helena birti fallegar myndir og myndband frá athöfninni á Instagram þar sem Ragnheiður Gröndal tók lagið. Helena hefur verið áberandi í umfjöllun um kvennaknattspyrnu á Stöð 2 Sport undanfarin misseri auk þess að vera gestgjafi í EM-stofunni í sumar.

Marg­verð­launaða fim­leika­konan Gló­dís Guð­geirs­dóttir og at­hafna- og veitinga­maðurinn Stein­þór Helgi Arn­steins­son giftu sig á veitinga­staðnum Vagninum á Flat­eyri sumar.  Þau fengu sýslu­mann Vest­fjarða yfir á Flat­eyri og skrifuðu form­lega undir hjóna­pappírana hjá honum.

„Dagurinn var annars allur hinn besti. Ég svaf út, svitnaði smá í saununni, vann eitt­hvað og kíkti í eina báts­ferð áður en sjálf vígslan fór fram. Um kvöldið borðuðu við svo góðan mat og fórum í pöbb­kvis,“ skrifaði Stein­þór Helgi á Face­book.

Veisla þeirra hjóna mun þó ekki fara fram fyrr en næsta sumar.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, giftist unnusta sínum Rafal Orpel í júlí. Athöfnin fór fram í garðinum heima hjá parinu og voru aðeins þeir allra nánustu viðstaddir.

Þórhildur greindi frá tíðindunum í færslu á Facebook-síðu sinni. Hún segir þau ekki hafa geta beðið með að gifta sig, þó svo að brúðkaupsveislan sjálf muni fara fram á næsta ári.

„7.7. er dagurinn sem við byrjuðum saman fyrir þremur árum og því réttur dagur til þess að játast hvert öðru.“ 


Tengdar fréttir

Bestu leikir ársins: Undarlegt leikjaár á enda komið

Árið sem er nú að ljúka var svo sem ekkert að springa úr tölvuleikjum, ef svo má að orði komast og má færa rök fyrir því að skortur hafi verið á stórum leikjum þetta árið. 2020 sökkaði en þá fengum við þó fjölmarga frábæra leiki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.