Lífið

Chitty Chitty Bang Bang-stjarnan Sally Ann Howes látin

Atli Ísleifsson skrifar
Truly Scrumptious og krakkarnir á ströndinni í myndinni Chitty Chitty Bang Bang.
Truly Scrumptious og krakkarnir á ströndinni í myndinni Chitty Chitty Bang Bang.

Enska leikkonan Sally Ann Howes, sem gerði garðinn grægan fyrir hlutverk sín í myndinni Chitty Chitty Bang Bang og leikritinu My Fair Lady, er látin, 91 árs að aldri.

Leikkonan birtist fyrst á skjánum þegar hún var tólf ára gömul og spannaði leikferill hennar um sex áratugi. 

Howes er þekktust fyrir að hafa farið með hlutverk Truly Scrumptious í myndinni Chitty Chitty Bang Bang frá árinu 1968, þer sem hún lék á móti leikaranum Dick Van Dyke.

Howes tók við hlutverki Eliza Doolittle í söngleiknum My Fair Lady á Broadway í New York árið 1958 af leikkonunni Julie Andrews.

Eiginmaður Howes til 48 ára, Douglas Rae, lést fyrr á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.